Mikill meirihluti þjóðarinnar telur Náttúrufræðistofnun skipta miklu máli
Það er ánægjulegt að geta sagt frá því að um 73% landsmanna telur að starfsemi Náttúrufræðistofnunar skipti miklu máli. Þetta kemur fram í athugun sem Capacent Gallup gerði fyrir NÍ í febrúarmánuði, samhliða venjulegum spurningavagni. Jón Gunnar Ottósson forstjóri NÍ segist mjög sáttur við það viðhorf til stofnunarinnar og traust sem hér birtist. „Það er sérstaklega ánægjulegt að fá þessa afstöðu núna á þessum erfiðu tímum“ segir Jón Gunnar.
![]() |
![]() |
| 72,9% telja að starfsemi NÍ skipti miklu máli. | NÍ er á svipuðu róli og Umboðsmaður Alþingis og Heilbrigðiskerfið. |
73% telja að starfsemi NÍ skipti miklu máli
Spurt var hversu miklu máli starfsemi Náttúrufræðistofnunar Íslands skiptir. 72,9% sögðu hana skipta miklu máli, 10,2% sögðu litlu máli, en 16,9% hvorki né.
Ekki greindist marktækur munur á trausti í garð stofnunarinnar hvað varðaði kyn, aldur, búsetu eða tekjur. Hins vegar mældist marktækur munur á afstöðu til stofnunarinnar eftir aldri og töldu yngstu aldurshóparnir, frá 16-34 ára, mikilvægið heldur minna en þeir sem eldri eru.
![]() |
| 52,0% bera mikið traust til NÍ. Aðeins 2,3% bera mjög lítið traust til stofnunarinnar. |
Hversu mikið eða lítið traust berð þú til Náttúrufræðistofnunar Íslands?
Þá var spurt hversu mikið eða lítið traust fólk bæri til Náttúrufræðistofnunar og var niðurstaðan sú að 52,0% sögðu mikið, 6,7% sögðu lítið en 41,4% hvorki né. Ef rýnt er í niðurstöðurnar kemur í ljós að einungis 2,3% bera mjög lítið traust til stofnunarinnar. Samanburður við aðrar opinberar stofnanir sýnir að NÍ er á svipuðu róli og Heilbrigðiskerfið og Umboðsmaður Alþingis, en á eftir HÍ og lögreglunni.
Upphaflegt úrtak var 2351 manns og fjöldi svarenda 1476 eða 62,8%.




