25. febrúar 2015. Páll Bjarnason: Drónar og notkun þeirra við náttúrurannsóknir

25. febrúar 2015. Páll Bjarnason: Drónar og notkun þeirra við náttúrurannsóknir

Páll Bjarnason byggingartæknifræðingur hjá EFLA verkfræðistofu flytur erindið „Drónar og notkun þeirra við náttúrurannsóknir“ á Hrafnaþingi miðvikudaginn 25. febrúar kl. 15:15.

EFLA hefur unnið með dróna eða flygildi undanfarin tvö ár á samstarfi við Suðra ehf. og UAS Iceland. Farið verður yfir reynslu af notkun flygildanna og hverju er hægt að búast við af þeim, það er gögn og gæði.

Á árinu 2014 voru flogin samtals 80 flug þar m.a. var kortlagt fyrir rannsóknir, skipulagsvinnu eða framkvæmdir. Sýnd verða gögn frá mismunandi verkefnum og hvað hægt er að gera við gögnin til áframhaldandi vinnslu.

Fyrirlesturinn á YouTube