Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Klófífa eða brok (Eriophorum angustifolium) vex í votlendi, mýrum og flóum. Hún er mjög algeng um allt land frá láglendi upp í 700-800 m hæð. © Anette Th. Meier

Fléttur

MóaþembaÁ Íslandi hafa fundist rúmlega 700 tegundir af fléttum, yfir 400 þeirra eru hrúðurfléttur og afgangurinn blað- og runnfléttur. Sífellt finnast nýjar tegundir fléttna hér á landi. Vorið 2006 fundust þrjár nýjar blaðfléttur, þeirra á meðal móaþemba, Hypogymnia austerodes, sem fannst fyrsta sinni í Eyjafirði 14. apríl 2006. Hana má sjá á mynd Harðar Kristinssonar hér til hægri.

Sambýli svepps og þörungs eða bakteríu

Fléttur eru sambýli svepps og grænþörungs og/eða blábakteríu. Sveppurinn er oftast ráðandi aðilinn í sambandinu og nafn fléttunnar er nafn sveppsins enda má oft finna sama grænþörunginn í mismunandi fléttum. Sveppurinn leggur til hagstæð búsetuskilyrði fyrir þörunginn eins og raka og vörn fyrir of sterku sólarljósi en nýtir í staðinn stóran hluta framleiðslu þörungsins. Fléttur hafa mikla aðlögunarhæfni og eru því oft áberandi á stöðum þar sem annar gróður á erfitt uppdráttar. Þannig eykst hlutfall fléttna til fjalla og fléttur eru oft fyrstu landnemarnir á nýrunnum hraunum.

Sveppurinn í fléttunni fjölgar sér oft með kynæxlun, myndar þá gró í svokölluðum öskum en langflestir fléttumyndandi sveppir tilheyra Asksveppum. Spírandi sveppgróið verður að finna hentugan sambýling (grænþörung, blábakteríu) til að ná að þroskast sem flétta. Ýmsar fléttutegundir fjölga sér hins vegar á kynlausan hátt á þann hátt að sérmynduð líffæri (snepar, hraufukorn), sem í eru bæði sveppþræðir og þörungafrumur, losna frá þalinu og dreifast t.d. með vindi eða dýrum.

Margar fléttur mynda sérstök efnasambönd sem ekki hafa fundist annars staðar í lífheiminum. Þetta eru oft sýrur sem kallast fléttusýrur. Sumar þeirra gefa fléttunum eiginleika sem menn hafa hagnýtt sér frá fornu fari t.d. til litunar eða sem náttúrulyf því sumar fléttusýrur hafa bakteríudrepandi eiginleika.

Runnfléttur, blaðfléttur og hrúðurfléttur

Fléttum er af hefð skipt í þrjá meginflokka með tilliti til útlits. Runnfléttur eru greinóttar og rísa oftast frá undirlaginu. Sem dæmi um runnfléttur má nefna hreindýrakróka (hreindýramosa) og ýmsar bikarfléttur. Blaðfléttur eru blaðkenndar og liggja því oftast samhliða undirlaginu. Dæmi um þær eru t.d. fjallagrös, engjaskófir og geitaskófir. Hrúðurfléttur mynda hrúður á undirlaginu og hentar íslenska nafnið skófir þeim vel. Hrúðurflétturnar eru algengastar á klettum, berki og jarðvegi. Af íslenskum fléttutegundum eru flestar tegundirnar hrúðurfléttur. Þessir þrír flokkar endurspegla þó engan veginn skyldleikatengsl fléttna sem bendir til að hin ólíku vaxtarform hafi þróast oft í tímans rás.

Fléttumyndandi sveppir eru ekki náttúrulegur hópur í þeim skilningi að þeir komi af einum sameiginlegum forföður. Þeir eru með öðrum orðum ekki einstofna heldur hafa allnokkrir hópar sveppa tekið upp sambýli við grænþörung/blábakteríu óháð hver öðrum. Langstærsti hluti fléttumyndandi sveppa eru asksveppir og reyndar er u.þ.b. helmingur þekktra asksveppa fléttumyndandi. Á Íslandi tilheyra flestar fléttur litskófabálki (Lecanorales), rúmlega 500 tegundir. Af engjaskófarbálki (Peltigerales) og fjörusvertubálki (Verrucariales) eru u.þ.b. 70 tegundir af hvorum og af grábreyskjubálki (Pertusariales) eru tæplega 50 tegundir. Af öðrum bálkum eru 1-17 tegundir en íslenskar fléttur tilheyra 17 mismunandi ættbálkum auk þess sem a.m.k. ein tegund hérlends kólfsvepps myndar fléttu.




Þú ert hér: Forsíða > Grasafræði > Flóra > Fléttur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Grasafræði

  • Gróðurfar
  • Flóra
    • Háplöntur
    • Mosar
    • Fléttur
      • Fléttutíðindi
    • Sveppir
  • Válisti háplantna
  • Plöntu- og sveppasöfn
  • Gróðurkort
  • Frjómælingar
  • Flokkunarkerfi plantna
  • Rannsóknir
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica