Háplöntur
Háplöntur eða öðru nafni æðplöntur (Tracheophyta), skiptast í fjóra megin flokka: Jafna (Lycophyta), byrkninga, berfrævinga og blómplöntur. Tveir þeir fyrstnefndu flokkast til gróplantna en tveir þeir síðastnefndu til fræplantna (L. Spermatophyta).
Til íslenskra háplantna má telja um 490 tegundir (sjá plöntulista á vefnum floraislands.is). Þá eru auk innlendra plantna einnig taldar með aðfluttar tegundir sem telja má ílendar. Stærsti hluti þessara tegunda telst til tvíkímblöðunga eða liðlega 300 tegundir og næst koma einkímblöðungar með um 150 tegundir. Undafíflar (Hieracium spp.) eru þá taldir sem 22 tegundir í samræmi við einfaldaða flokkun Bergþórs Jóhannssonar 2004. Byrkningar telja um 31 tegundir og jafnar 9 tegundir. Að lokum reka berfrævingar lestina með 4 tegundir, þar af eina innlenda en þrjár aðfluttar, síberíulerki, stafafuru og sitkagreni sem eru farnar að sá sér ríkulega á eigin spýtur.

