Mosar
Mosar skiptast í þrjár fylkingar: baukmosa, hornmosa og soppmosa. Mosar eiga það sameiginlegt að þarfnast vatns til kynæxlunar, gróliður (þ.e. sá hluti plöntunnar sem framleiðir gró) er alltaf ógreindur og þá skortir æðstrengi líkt og byrkningar og háplöntur hafa. Mosafylkingarnar þrjár eru um margt ólíkar og nýjustu rannsóknir benda til að mosar séu ekki náttúrulegur hópur í þeim skilningi að þeir komi af einum sameiginlegum forföður, þeir eru með öðrum orðum ekki einstofna.
Hornmosar (Anthocerotophyta) eru gerðir úr óreglulegu sepóttu eða kvíslgreindu þali sem er án allrar vefjaskiptingar. Á neðra borði myndast varafrumur og undir þeim smáhol sem oftast eru fyllt af bláþörungum. Einungis ein tegund af hornmosum hefur fundist á Íslandi, hverahnýfill sem er bundin jarðhita.
Soppmosar (Marchantiophyta) eru ýmist gerðir úr þali eða úr stöngli og blöðum en blöðin eru alltaf án rifs. Af soppmosum hafa fundist 139 tegundir á Íslandi.
Baukmosar (Bryophyta) eru gerðir úr stöngli og blöðum og eru blöðin oftast með miðrifi. Af baukmosum hafa 460 tegundir fundist á Íslandi.

