Í sumar skoðaði bandaríski sveppafræðingurinn Donald H. Pfister prófessor við Harvard háskóla íslenska skálsveppi. D.H. Pfister er sérfræðingur í disksveppum og hefur stundað rannsóknir á þeim um áratuga skeið. Hann skoðaði bæði þurrkuð sýni í sveppasafni Akureyrarseturs NÍ og safnaði ferskum disksveppum í sínu náttúrulega umhverfi aðallega í Eyjafirði í grennd við Akureyri, en einnig í Fnjóskadal og á Fljótsdalshéraði.
Lesa meira