Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Blóm túnfífils (Taraxacum spp.) sitja mörg saman í körfu. Hvert blóm er bæði karl- og kvenkyns. Þegar fræin þroskast nefnist karfan biðukolla. © Erling Ólafsson

Fróðleikur um sveppi

Áður fyrr þóttu sveppir líkari plöntum en dýrum og voru hafðir í plönturíkinu. Skilgreining á sveppi byggist á lífsmáta sem hefur þróast nokkrum sinnum enda finnast lífverur með einkenni sveppa í þrem ríkjum lífheimsins þótt langflestir séu þeir í svepparíkinu. Sveppir eru heilkjarna, ófrumbjarga lífverur sem fjölga sér með gróum og hafa flestir þráðlaga líkama sem greinist þegar hann stækkar. Til að leggja áherslu á sérstöðu sveppa eru sveppafræðingar farnir að nota orðið funga á sama hátt og flóra eða fána. Því mun í framtíðinni verða talað um fungu Eyjafjarðar eða fungu sitkagrenis í stað sveppaflóru.

Sjá nánar um Flokkunarkerfi sveppa og íslenskar svepparannsóknir

Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir hefur umsjón með svepparannsóknum á Náttúrufræðistofnun.

Áhugavert efni og fróðlegar heimasíður um sveppi:

  • „The fifth kingdom” (Fimmta ríkið þ.e. svepparíkið), kennslubók eftir kanadíska sveppafræðinginn Bryce Kendrick, á sveppum. Á heimasíðu bókarinnar er mikið af góðum skýringarmyndum og ljósmyndum af sveppum.
  • „Dictionary of the fungi” eftir Kirk o.fl. 9. útg. 2001
  • Íslenskt sveppatal I. Smásveppir. Helgi Hallgrímsson og Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir 2004. Fjölrit Náttúrufræðistofnunar nr. 45. 189 s.
  • Aquatic fungi of Iceland. Biflagellate species. T.W. Johnson, Jr. 1974. Acta Naturalia Islandica 23. 40 s.
  • Aquatic fungi of Iceland: Uniflagellate species. T.W. Johnson, Jr. 1973. Acta Naturalia Islandica 22. 38 s.
  • Asparryð. Halldór Sverrisson, Guðmundur Halldórsson, Guðríður G. Eyjólfsdóttir, Edda S. Oddsdóttir 2001. Í: Ráðunautafundur 2001, ritstj. BÍ, LBH, RALA, Reykjavík. 286-289.


Þú ert hér: Forsíða > Grasafræði > Flóra > Sveppir > Fróðleikur um sveppi

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Grasafræði

  • Gróðurfar
  • Flóra
    • Háplöntur
    • Mosar
    • Fléttur
    • Sveppir
      • Fróðleikur um sveppi
      • Sveppatíðindi
  • Válisti háplantna
  • Plöntu- og sveppasöfn
  • Gróðurkort
  • Frjómælingar
  • Flokkunarkerfi plantna
  • Rannsóknir
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica