Flokkunarfræði plantna
Það flokkunarkerfi plantna og sveppa sem hér er sýnt byggir á ITIS kerfinu (Integrated Taxonomic Information System). Gert er ráð fyrir að lífheimurinn skiptist í fimm ríki, þ.e. bakteríur (bacteria), frumdýr (protista), vefdýr (animalia), sveppi (fungi) og plöntur (plantae). Samkvæmt þessu er hið hefðbundna „plönturíki“ ekki náttúrleg eining heldur blanda hópa sem allir hafa það sammerkt að geta ljóstillífað. Hér fyrir neðan er gerð grein fyrir fylkingum plantna og sveppa. Æðplöntur teljast undirríki innan plönturíkisins en einkímblöðungar og tvíkímblöðungar eru flokkar innan fylkingar dulfrævinga. Nýlegar niðurstöður sameindafræðilegra rannsókna á þróunarsögu lífheimsins benda til að hann skiptist enn frekar eða í átta ríki alls. Samkvæmt því kerfi samanstendur plönturíkið af fylkingum grænþörunga, kransþörunga, soppmosa, hornmosa, baukmosa, jafna, elftinga, burkna, berfrævinga og dulfrævinga. Hinar ýmsu þörungafylkingar lenda hinsvegar í tveimur öðrum ríkjum, flestar í ríki „litvera“ (Chromista) en aðrar svo sem dílþörungar í ríki frumdýra.
Plöntur - Plantae
Hornmosar – Anthocerotophyta
Baukmosar – Bryophyta
Soppmosar – Hepatophyta
Kransþörungar – Charophyta
Grænþörungar – Chlorophyta
Gullþörungar – Chrysophyta
Dílþörungar – Euglenophyta
Haftþörungar – Haptophyta
Brúnþörungar – Phaeophyta
Skoruþörungar – Phyrrophycophyta
Rauðþörungar – Rhodophyta
Gulþörungar – Xanthophyta
Kísilþörungar – Bacillariophyta
Æðplöntur – Tracheobionta
Elftingar – Equisetophyta
Jafnar – Lycopodiophyta
Burknar – Pteridophyta
Berfrævingar – Coniferophyta
Dulfrævingar – Magnoliophyta
Einkímblöðungar – Liliopsida
Tvíkímblöðungar - Magnoliopsida
Sveppir – Fungi
Kytrusveppir – Chytridiomycota
Oksveppir – Zygomycota
Asksveppir – Ascomycota
Kólfsveppir - Basidiomycota

