Greiningarlyklar
Greiningarlyklar eru notaðir til að greina að tegundir og ættkvíslir plantna. Þeir eru oftast tvídeildir þannig að fyrir hvert greiningareinkenni er um tvo möguleika að velja sem leiða ýmist til tegundarinnar eða til annars tvídeilds greiningareinkennis. Á síðustu árum hefur tölvutæknin verið nýtt til að gera gagnvirka greiningarlykla þar sem hægt er að slá inn þau einkenni sem eru greinileg og forritið velur þá þær tegundir sem uppfylla gefin skilyrði. Þetta er mikil framför þar sem hefðbundnir greiningarlyklar verða oft mjög langir og er mikil list að gera þá vel úr garði þannig að ekki sé t.d. árstíðabundið einkenni (frægerð, blóm) notað snemma í lyklinum sem útilokar þá að lykillinn sé notaður á öðrum tímum. Hér munu birtast hefðbundnir greiningarlyklar fyrir íslenskar plöntur og sveppi eftir því sem þeir verða aðgengilegir á tölvutæku formi.
Til eru greiningarlyklar yfir íslenskar háplöntur og byrkninga í Flóru Íslands eftir Stefán Stefánsson, einnig hefur Bergþór Jóhannsson gert lykla yfir allar ættkvíslir mosa og hafa þeir birst í ritröðinni: Íslenskir mosar sem gefin var út sem fjölrit Náttúrufræðistofnunar á árunum 1989-2003. Þar að auki hefur Hörður Kristinsson gert lykil yfir blað- og runnfléttur sem lítilsháttar hefur verið dreift sem ljósriti.

