Korpur
Korpur (Dermatocarpon) tilheyra Fjörusvertuætt (Verrucariaceae) og einkennast af blaðkenndu þali sem fest er við undirlagið með einum nafla (umbilicus) eða fleiri naflkenndum festingum. Askarnir þroskast í skjóðum (perithecium) og sjást op skjóðanna sem svartir punktar á efra borði þalsins. Af ættkvíslinni hafa sjö tegundir fundist á Íslandi auk þriggja afbrigða af blaðkorpu.
Greiningarlykill fyrir íslenskar korpur.
1. Þalið hreisturkennt, stærð „bleðla“ minni en 5 mm
hreisturkorpa, D. leptophyllodes
1. Þalið greinilega blaðkennt 2
2. Efra borð þalsins brúnleitt 3
2. Efra borð þalsins gráleitt 4
3. Þalið smátt, <15 mm, frekar þykkt brúnkorpa, D. meiophyllizum
3. Þalið stærra en 15 mm, frekar þunnt og með
æðar á neðra borði lækjakorpa, D. rivulorum
4. Þalið einblaða 5
4. Þalið margblaða 7
5. Neðra borð þalsins dökkbrúnt, þaljaðrar oftast
niðursveigðir, þalið stærra en 15 mm vætukorpa, D. bachmannii
5. Neðra borð þalsins ljósbrúnt til brúnt 6
6. Gró stærri en 15 µ, þalið minna en 15 mm vætlukorpa, D. deminuens
6. Gró minni en 15 µ blaðkorpa, D. miniatum
7. Miðlag þalsins verður rautt í Melzer´s joði
krumpinkorpa, D. polyphyllizum
7. Miðlag þalsins svarar ekki Melzer´s joði
þarmakorpa, D. miniatum var. complicatum
Blaðkorpa, D. miniatum
1. Margblaða þal sem fest er við undirlagið með fleiri en einni festingu
þarmakorpa, D. miniatum var. complicatum
1. Einblaða þal sem fest er við undirlagið með einni festingu 2
2. Neðra borð greinilega vörtótt vörtukorpa, D. miniatum var. cirsodes
2. Neðra borð mismunandi en ekki vörtótt
blaðkorpa, D. miniatum var. miniatum

