Beint í leiðarkerfi vefsins.
Eftir frekar kalt vor með mjög lágum frjótölum er nú frjómagn í andrúmsloftinu farið að aukast. Á Akureyri hafa aðeins einu sinni mælst færri frjó í maí en núna í ár. Í Garðabæ er frjótalan í maí talsvert lægri en síðast liðin tvö ár.
Lesa meiraFrjómælingar hófust 9. apríl í Urriðaholti í Garðabæ. Þegar Náttúrufræðistofnun Íslands flutti í Urriðaholt var nýrri frjógildru komið fyrir á þaki hússins með það að markmiði að leysa af gildruna sem staðsett hefur verið á Veðurstofu Íslands. Nú hefur gildran gengið nær snurðulaust í tvö ár og því ekkert því til fyrirstöðu að hún leysi nú gömlu gildruna á Veðurstofunni af. Hún verður tæmd vikulega á þriðjudögum og ættu talningarniðurstöður að birtast 1-2 dögum síðar.
Lesa meiraÞað hefur dregið mikið úr grasfrjóum á höfuðborgarsvæðinu og litlar líkur á háum frjótölum úr þessu. Fyrir norðan geta meðalháar frjótölur grasa mælst allt fram í miðjan september þegar góðviðrisdagar koma.
Lesa meira