Frjómælingar í Reykjavík og á Akureyri
Frjómælingar fara fram í Reykjavík og á Akureyri á tímabilinu 15. apríl til 30. september á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands í samstarfi við Veðurstofu Íslands.
![]() |
| Frjógildra í mælireit við Veðurstofu Íslands. Ljósm. Margrét Hallsdóttir. |
Mælingar á frjókornum í andrúmsloftinu í Reykjavík frá árinu 1988 sýna að lyng- og víðifrjó koma fyrst á vorin, asparfrjó birtast fyrir miðjan maí. Af þeim tegundum sem þekktar eru sem skæðir ofnæmisvaldar dreifast birkifrjó fyrst, oftast í síðustu viku maí. Frjókorna túnsúru og hundasúru (súrufrjóa) verður jafnan vart í fyrri hluta júní og grasfrjó birtast um svipað leyti eða skömmu síðar. Grasfrjó eru stöðugt í loftinu frá lokum júní og fram í september. Mesta magnið er jafnan í síðustu viku júlí og fyrri hluta ágúst en þá er vallarfoxgras og língresi í blóma.
Frjódagatal fyrir Reykjavík er byggt á 10 daga meðaltölum áranna 1988-2008. Til að gefa til kynna mikinn breytileika í magni frjókorna í andrúmsloftinu eru hámarksgildi og meðal-gildi sýnd. Myndin sýnir ástandið eins og það er í nágrenni Veðurstofu Íslands við Bústaðaveg þar sem frjógildra er staðsett.
Á Akureyri hafa frjómælingar staðið yfir í 12 ár eða frá sumrinu 1998 og byggir frjódagatalið á þeim. Frjógildran er á steyptu þaki Krónunnar, Hafnarstræti 97, þar eru því lítil staðbundin áhrif gróðurs. Bæði birki- og asparfrjó koma sterkar fram en í Reykjavík, en súrufrjóa gætir lítið.
Mælingum á frjókornum lýkur 1. október. Starfsmenn Náttúrufræðistofnunar Íslands á Akureyri hafa umsjón með rekstri frjógildrunnar á Akureyri, en í Reykjavík fara frjómælingar fram í samstarfi við Veðurstofu Íslands.
Frjómælingar sumarið 2011
Smellið á gröfin til að fá stærri mynd.
|
Reykjavík sumarið 2011 |
Akureyri sumarið 2011 |
![]() |
![]() |
Frjómælingar fyrri ára
|
Ár |
Reykjavík |
Akureyri |
| 2010 | |
![]() |
| 2009 | |
![]() |
| 2008 | |
![]() |
| 2007 | |
![]() |
| 2006 | ![]() |
![]() |
| 2005 | ||
| 2004 | ![]() |
|
| 2003 | ![]() |
![]() |
| 2002 | ![]() |
Frjótölur eru birtar í textavarpi RÚV (bls. 193) og uppfærðar þar vikulega, oftast á þriðjudögum eða miðvikudögum.
Á vefslóðinni European Pollen Information má finna upplýsingar um ástandið í nokkrum löndum Evrópu.
Margrét Hallsdóttir, jarðfræðingur, hefur umsjón með frjómælingum á NÍ






















