Frjómælingar í Reykjavík og á Akureyri

Frjómælingar fara fram í Reykjavík og á Akureyri á tímabilinu 15. apríl til 30. september á vegum Náttúrufræðistofnunar Íslands í samstarfi við Veðurstofu Íslands.

Frjógildra
Frjógildra í mælireit við Veðurstofu Íslands. Ljósm. Margrét Hallsdóttir.

Mælingar á frjókornum í andrúmsloftinu í Reykjavík frá árinu 1988 sýna að lyng- og víðifrjó koma fyrst á vorin, asparfrjó birtast fyrir miðjan maí. Af þeim tegundum sem þekktar eru sem skæðir ofnæmisvaldar dreifast birkifrjó fyrst, oftast í síðustu viku maí. Frjókorna túnsúru og hundasúru (súrufrjóa) verður jafnan vart í fyrri hluta júní og grasfrjó birtast um svipað leyti eða skömmu síðar. Grasfrjó eru stöðugt í loftinu frá lokum júní og fram í september. Mesta magnið er jafnan í síðustu viku júlí og fyrri hluta ágúst en þá er vallarfoxgras og língresi í blóma.

Frjódagatal fyrir Reykjavík er byggt á 10 daga meðaltölum áranna 1988-2008. Til að gefa til kynna mikinn breytileika í magni frjókorna í andrúmsloftinu eru hámarksgildi og meðal-gildi sýnd. Myndin sýnir ástandið eins og það er í nágrenni Veðurstofu Íslands við Bústaðaveg þar sem frjógildra er staðsett.

Á Akureyri hafa frjómælingar staðið yfir í 12 ár eða frá sumrinu 1998 og byggir frjódagatalið á þeim. Frjógildran er á steyptu þaki Krónunnar, Hafnarstræti 97, þar eru því lítil staðbundin áhrif gróðurs. Bæði birki- og asparfrjó koma sterkar fram en í Reykjavík, en súrufrjóa gætir lítið.

Mælingum á frjókornum lýkur 1. október. Starfsmenn Náttúrufræðistofnunar Íslands á Akureyri hafa umsjón með rekstri frjógildrunnar á Akureyri, en í Reykjavík fara frjómælingar fram í samstarfi við Veðurstofu Íslands.

Frjómælingar sumarið 2009

Smellið á gröfin til að fá stærri mynd.

Reykjavík sumarið 2009

Akureyri sumarið 2009

Birki- og grasfrjó sumarið 2009 í Reykjavík Birki- og grasfrjó sumarið 2009 á Akureyri

Frjómælingar fyrri ára

Ár

Reykjavík

Akureyri

2008 Reykjavík 2008 Akureyri 2008
2007 Reykjavík 2007 Akureyri 2007
2006 Reykjavík 2006 Akureyri 2006
2005

Reykjavík 2005

Akureyri 2005

2004 Reykjavík 2004

Akureyri 2004

2003 Reykjavík 2003 Akureyri 2003
2002 Reykjavík 2002

Akureyri 2002


Frjótölur eru birtar í textavarpi RÚV (bls. 169) og uppfærðar þar vikulega, oftast á þriðjudögum eða miðvikudögum. Þá má skoða frjótölur liðinnar viku á vefsíðu Morgunblaðsins

Á vefslóðinni European Pollen Information má finna upplýsingar um ástandið í nokkrum löndum Evrópu.


Margrét Hallsdóttir, jarðfræðingur, hefur umsjón með frjómælingum á NÍ


 

 

Efra hliðarval


Útlit síðu: