Frjómælingar 2010

BIRKIFRJÓ 2010

GRASFRJÓ 2010

Grasfrjó ná hámarki fyrir norðan

Á Akureyri voru frjótölur grasa lágar framan af sumri. Frjótalan fór ekki yfir 10 fyrr en komið var fram í síðari hluta júlí (20.7). Svo seint hefur það ekki gerst áður í 12 ára sögu frjómælinga á Akureyri. Frjótalan hefur sveiflast mikið síðustu þrjár vikurnar varð hæst sl. sunnudag þegar 157 grasfrjó voru að meðaltali í rúmmetra lofts þann sólarhringinn (8.8).

Í Reykjavík er aðalgrastíminn að baki og farið að draga verulega úr fjölda grasfrjóa, þó svo frjótölur eigi það enn til að rjúka upp í stuttan tíma á góðviðrisdögum eins og gerðist síðdegis sunnudaginn 8. ágúst.

Vallarfoxgras í blóma Húsapuntur í blóma
Vallarfoxgras á hættulegu stigi fyrir fólk með grasofnæmi. Blómgaður húsapuntur (Elytrigia repens) með hangandi gula frjóhnappa. Húsapuntur er víða í blóma um þessar mundir á Reykjavíkursvæðinu.

Vallarfoxgras (Phleum pratense) er líklega almennt blómgað á landinu. Þegar blómin í axpuntinum eru komin á það stig að frjóhnapparnir eru komnir út úr smáaxinu, þá dreifast frjókornin greiðlega út í andrúmsloftið þegar vind hreyfir. Frjókorn vallarfoxgrass eru hvað skæðust frjókorna af grasætt.

Úti í Evrópu ná malurtarfrjó (Artemisia e. mugwort) hámarki um þessar mundir en þau eru mjög skæðir ofnæmisvaldar. Einnig er Ambrosia artemisiifolia (e. ragweed) farin að dreifa frjókornum í suðausturhluta Evrópu. Sú planta er illgresi, ættað frá Ameríku. Plantan dreifist hratt út á ökrum og hefur nú náð til Norðurlandanna, Danmerkur, Svíþjóðar og Finnlands. Hámark “Ambrosiu”frjóa er oftast í september. Við erum laus við báðar þessar tegundir í “óspilltri náttúru landsins” og verðum það vonandi sem lengst.

11. ágúst 2010

Eldri pistlar:

29.7.2010

22.7.2010
16.7.2010
9.7.2010
10.6.2010
2.6.2010
28.5.2010
20.5.2010
12.5.2010
7.5.2010
30.4.2010
19.4.2010

 

 

Efra hliðarval


Útlit síðu: