12. maí 2010
Í Reykjavík eru hávaxnar gamlar aspir víða rauðlitaðar af karlreklum. Tré sem bera kvenkynsblóm eru aftur á móti grænleit. Fyrstu asparfrjóin mældust snemma (17. apríl). Þau komu fyrir stopult fram að 7. maí en síðan þá hafa asparfrjó mælst hvern dag og frjótölur fóru yfir 10 um síðustu helgi (9. maí).
Aðrar tegundir sem eru í loftinu þessa dagana eru víði- og lyngfrjó. Í þokusúld sleppa fá frjókorn út í loftið en þegar þurrt er, sól skín og hitar loftið, má gera ráð fyrir hærri frjótölum en ella.
Birkið er farið að grænka og karlreklarnir þrútna og lengjast með hverjum deginum sem líður. Þar með styttist í að birkifrjó dreifist út í loftið. Það gæti tekið 6-10 daga, háð hlýindum næstu daga. Birkifrjó eru einn skæðasti ofnæmisvaldur meðal frjókorna hér á landi.
| Ösp sem ber karlblóm er rauðlituð af reklamergð. | Á greinum aspanna hanga rauðlitaðir karlreklarnir í tugatali. Þaðan dreifast asparfrjó út í loftið. |
Það sem af er maímánuði hafa lyng- og víðifrjó mælst flesta daga á Akureyri. Fyrstu asparfrjóin mældust 7. maí og um helgina fóru frjótölur aspar yfir 10 eins og gerðist í Reykjavík.

