Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Blóm túnfífils (Taraxacum spp.) sitja mörg saman í körfu. Hvert blóm er bæði karl- og kvenkyns. Þegar fræin þroskast nefnist karfan biðukolla. © Erling Ólafsson

20. maí 2010

Í Reykjavík mældust fyrstu birkifrjóin 13. maí. Frjótölur eru enn lágar en í hlýindum og þurrviðri sem spáð er um helgina má búast við háum frjótölum (um 100) sunnanlands þar sem birki vex. Þar sem súld og þokuloft helst eru frjótölur hins vegar lágar. Hér á landi er sjaldgæft að frjótölur birkis fari yfir 100.
Dregið hefur úr asparfrjóum í Reykjavík en þau fóru hæst í 39 frjó í rúmmetra þann 15. maí.

Á Akureyri mældust fyrstu asparfrjóin 7. maí og 12. maí fóru frjótölur aspar hæst í 22.
Birkifrjó voru ekki farin að mælast fyrir norðan á mánudag 17. maí en gætu hugsanlega farið að dreifast nú um hvítasunnuhelgina en þá er spáð hlýindum og þurrviðri í innsveitum fyrir norðan og austan.

mh_birki birkirekill
Karlreklar á birki. Blómin eru ekki að fullu útsprungin en stutt í að frjókorn fari að dreifast út í loftið. Kvenreklarnir eru minna áberandi og standa uppréttir á greinunum. Karlrekill á birki. Blómin eru útsprungin og frjókorn farin að dreifast út í loftið.

Birkifrjó eru næstskæðasti ofnæmisvaldur meðal frjókorna hér á landi, hins vegar eru grasfrjó sem oftast koma þegar líður á júnímánuð talin skæðust.



Þú ert hér: Forsíða > Grasafræði > Frjómælingar > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Grasafræði

  • Gróðurfar
  • Flóra
  • Válisti háplantna
  • Plöntu- og sveppasöfn
  • Gróðurkort
  • Frjómælingar
    • Frjómælingar 2011
    • Samantekt frjómælinga
    • Fróðleikur
    • Ofnæmisvaldar
  • Flokkunarkerfi plantna
  • Rannsóknir
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica