Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Blóm túnfífils (Taraxacum spp.) sitja mörg saman í körfu. Hvert blóm er bæði karl- og kvenkyns. Þegar fræin þroskast nefnist karfan biðukolla. © Erling Ólafsson

28. maí 2010

Reykjavík stendur frjótími birkis sem hæst. Í hlýindum og þurrviðri um hvítasunnuhelgina náðu frjótölur birkis hærri gildum en áður hafa mælst frá innlendum birkitrjám. Þann 24. maí reyndist frjótalan 392 áður hafði hún mælst hæst 204 fyrir tæpum fjórum árum eða þann 1. júní vorið 2006. Hér á landi er sjaldgæft að frjótölur birkis fari yfir 100, en í þau 22 ár sem frjómælingar hafa farið fram í Reykjavík hefur það aðeins gerst níu sinnum.
Háliðagras og vallarsveifgras er víða skriðið á höfuðborgarsvæðinu en þá er stutt í að blómin springi út og fari að dreifa grasfrjói.

Á Akureyri mældust fyrstu birkifrjóin 19. maí, frjótölur eru enn sem komið er lágar. Tíðarfar hefur verið kalt fyrir norðan og austan en nú er spáð hita yfir 10°C um helgina og þá gætu frjótölur birkis hækkað verulega

mh_birki birkirekill
Karlreklar á birki. Blómin eru ekki að fullu útsprungin en stutt í að frjókorn fari að dreifast út í loftið. Kvenreklarnir eru minna áberandi og standa uppréttir á greinunum. Karlrekill á birki. Blómin eru útsprungin og frjókorn farin að dreifast út í loftið.


Birkifrjó eru næstskæðasti ofnæmisvaldur meðal frjókorna hér á landi, hins vegar eru grasfrjó sem oftast koma þegar líður á júnímánuð talin skæðust.

Í þokulofti og súld eru frjótölur lágar.




Þú ert hér: Forsíða > Grasafræði > Frjómælingar > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Grasafræði

  • Gróðurfar
  • Flóra
  • Válisti háplantna
  • Plöntu- og sveppasöfn
  • Gróðurkort
  • Frjómælingar
    • Frjómælingar 2011
    • Samantekt frjómælinga
    • Fróðleikur
    • Ofnæmisvaldar
  • Flokkunarkerfi plantna
  • Rannsóknir
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica