2. júní 2010
Frjótíma birkis lýkur brátt syðra en hámarkið lætur bíða eftir sér nyrðra
Í Reykjavík náði frjótími birkis hámarki upp úr hvítasunnu. Tíðarfar hefur verið óvenju hagstætt frjódreifingu, hlýtt og þurrt, og sjaldan hafa mælst jafnmörg birkifrjó og í ár. Nú líður að lokum birkitímans suðvestanlands.
Fyrstu grastegundirnar eru skriðnar og þá er stutt í að blómin springi út, frjóhnapparnir komi fram í dagsljósið og frjókornin fari að berast út í andrúmsloftið. Grasfrjó eru algengasti ofnæmisvaldurinn meðal frjókorna á Íslandi.
Víða í Reykjavík má sjá nýútsprungnar túnsúrur þaðan berast súrufrjókorn sem einnig geta valdið ofnæmi. Fyrstu grasfrjóin og súrufrjóin mældust í Reykjavík nú í lok maí sem er óvenjusnemmt. Frjótölur þessara tegunda eru jafnan lágar framan af júní en oftast fjölgar frjókornum upp úr Jónsmessu, allt þó háð veðrinu.
Á Akureyri mældust fyrstu birkifrjóin 19. maí, frjótölur hafa enn sem komið er verið lágar. Tíðarfar hefur verið svalt fyrir norðan og austan, hiti sjaldan farið yfir 10°C en ef breyting verður á, þá gætu frjótölur birkis hækkað. Birkifrjó eru næstskæðasti ofnæmisvaldur meðal frjókorna hér á landi, hins vegar eru grasfrjó, sem oftast koma þegar líður á júnímánuð, talin skæðust.
Í þokulofti og súld eru frjótölur lágar.

