9. júlí 2010
Grasfrjó hafa verið í lofti hvern dag í Reykjavík frá 6. júní. Miðvikudaginn 9. júní fór frjótalan í fyrsta skipti í sumar yfir 10 en þann dag reyndust 12 grasfrjó í hverjum rúmmetra lofts að meðaltali, mest í morgunsárið eða á milli 6 og 10. Frá og með 14. júní hefur frjótala grasa verið yfir 10 flesta daga og farið hæst í 75 laugardaginn 3. júlí. Þannig fór grastíminn skarpt af stað syðra í ár. Tún við Bústaðaveg þar sem frjógildran er staðsett er enn óslegið og á það sinn þátt í því að frjótölur eru óvenjuháar miðað við árstíma.
Nú er vallarfoxgras (Phleum pratense) blómgað og frjóhnappar víða komnir í ljós (sjá mynd t.h.), þar með dreifast frjókornin greiðlega út í andrúmsloftið strax og vind hreyfir. Frjókorn vallarfoxgrass eru hvað skæðust frjókorna af grasætt. Búast má við háum frjótölum grasa þar sem þurrviðri verður um helgina á suðvesturlandi.
Frjó túnsúru og hundasúru náðu hámarki 14. júní þegar 16 súrufrjó voru í rúmmetra lofts. Súrufrjó mælast hvern dag en frjótölur eru lágar. Báðar frjógerðirnar, grasfrjó og súrufrjó, valda ofnæmi. Grasfrjó eru hins vegar algengasti ofnæmisvaldurinn hér á landi.
Á Akureyri mældust grasfrjó samfellt frá 10. júní til 4. júlí. Þann dag var aðeins eitt frjó af rósaætt í lofti. Til þessa hefur frjótala grasa ekki farið yfir 10 á Akureyri.
Frjótölur eru lágar þar sem þokuloft eða súld er viðvarandi.


