16. júlí 2010
Frjótími grasa hefur náð hámarki syðra
Grasfrjó hafa verið í lofti hvern dag í Reykjavík frá 6. júní. Miðvikudaginn 9. júní fór frjótalan í fyrsta skipti í sumar yfir 10 en þann dag reyndust 12 grasfrjó í hverjum rúmmetra lofts að meðaltali, mest í morgunsárið eða á milli 6 og 10. Frá og með 14. júní hefur frjótala grasa verið yfir 10 flesta daga. Þann 9. júlí fór frjótalan svo yfir 100 í fyrsta skipti í sumar. Það hefur ekki gerst svo snemma áður. Grastíminn stendur sem hæst suðvestanlands. Flestar grastegundir eru blómgaðar og margar dreifa frjókornum nú þegar.
Frjó túnsúru og hundasúru náðu hámarki 14. júní þegar 16 súrufrjó voru í rúmmetra lofts. Súrufrjó mælast enn hvern dag en frjótölur eru lágar. Báðar frjógerðirnar, grasfrjó og súrufrjó, valda ofnæmi. Grasfrjó eru hins vegar algengasti ofnæmisvaldurinn hér á landi.
Á Akureyri hafa grasfrjó mælst nær samfellt frá 10. júní. Frjótölur grasa hafa til þessa ekki farið yfir 10 á Akureyri. Norðanáttinni fylgir hátt rakastig og þá eiga grasfrjó erfitt með að sleppa út í loftið. Frjótölur eru því lágar þar sem þokuloft eða súld er viðvarandi.


