Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Gleym-mér-ei (Myosotis arvensis) er hærð og smáblóma jurt sem festist auðveldlega við föt. Hún er víðast algeng á láglendi nema á Norðausturlandi. © Erling Ólafsson

22. júlí 2010

Nú dregur úr grasfrjóum í lofti syðra en þeim fjölgar fyrir norðan

Grasfrjó hafa mælst hvern dag í Reykjavík frá 6. júní. Frjótalan fór í fyrsta skipti í sumar yfir 10 þann 9. júní, þegar 12 grasfrjó reyndust vera í hverjum rúmmetra lofts að meðaltali, mest í morgunsárið. Frá 14. júní hefur frjótala grasa verið hærri en 10 flesta daga og þann 9. júlí fór frjótalan svo yfir 100 í fyrsta skipti í sumar. Það hefur ekki gerst svo snemma áður. Dagana 12.-20. júlí hélst frjótala grasa há og fór hæst í 804 laugardaginn 17. júlí. Í ár eru flestar grastegundir þegar blómgaðar og dreifa frjókornum en margar hafa þroskað fræ. Hér eftir ætti því heldur að draga úr grasfrjóum í lofti. Spáð er rökum sunnanvindum, rigningu eða skúraveðri, syðra þannig að nú leggst allt á eitt með að gera þeim lífið bærilegra sem þjást af grasofnæmi.

Blómaengi við Bústaðaveg

Þar sem tún eru látin óslegin ná grastegundir að þroska blóm og dreifa frjókornum ríkulega eins og frjótölur við Veðurstofuna gefa til kynna. Fólk með grasofnæmi ætti að forðast slíka staði a.m.k. í þurrviðri.

Frjó túnsúru og hundasúru náðu hámarki 14. júní í Reykjavík, þegar 16 súrufrjó voru í rúmmetra lofts. Hámarkið hefur aldrei mælst jafnsnemma og í ár. Súrufrjó mælast enn hvern dag en frjótölur eru lágar. Báðar frjógerðirnar, grasfrjó og súrufrjó, valda ofnæmi. Grasfrjó eru hins vegar algengasti ofnæmisvaldurinn hér á landi.

Á Akureyri hafa grasfrjó mælst nær samfellt frá 10. júní. Frjótölur grasa hafa til þessa ekki farið yfir 10 á Akureyri. Undanfarin tólf ár hefur frjótalan farið yfir 10 einhvern tímann á tímabilinu 18. júní til 5. júlí þannig að í ár verður 10-þröskuldinum náð seinna en áður. Norðanáttin hefur verið þrálát í sumar, henni fylgir hátt rakastig og þá sleppa grasfrjó ekki svo auðveldlega út í loftið. Frjótölur eru því lágar þar sem þokuloft eða súld er viðvarandi.

Nú hefur orðið breyting á, hlý og þurr sunnanáttin komin norður yfir heiðar, og þá má búast við auknum fjölda grasfrjóa í lofti með öllu sem því fylgir fyrir þá sem haldnir eru grasofnæmi; nefrennsli, kláði í augum og endalausir hnerrar.




Þú ert hér: Forsíða > Grasafræði > Frjómælingar > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Grasafræði

  • Gróðurfar
  • Flóra
  • Válisti háplantna
  • Plöntu- og sveppasöfn
  • Gróðurkort
  • Frjómælingar
    • Frjómælingar 2011
    • Samantekt frjómælinga
    • Fróðleikur
    • Ofnæmisvaldar
  • Flokkunarkerfi plantna
  • Rannsóknir
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica