Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Blóm túnfífils (Taraxacum spp.) sitja mörg saman í körfu. Hvert blóm er bæði karl- og kvenkyns. Þegar fræin þroskast nefnist karfan biðukolla. © Erling Ólafsson

Ösp

Aspir, Populus, eru af víðisætt, ein tegund er talin innlend, blæösp (Populus tremula) og nokkrar hafa verið reyndar í ræktun. Alaskaösp (Populus trichocarpa) hefur verið í ræktun hér á landi frá miðri síðustu öld. Þegar öspin hefur náð a.m.k. 20 ára aldri ber hún fyrst blóm. Þá fyrst fer hún að dreifa frjókornum snemma á vorin. Á fyrstu árum frjómælinga í Reykjavík upp úr 1988 mældust fá og stundum engin asparfrjó en frá 1994 hafa þau mælst á hverju ári, voru fá í fyrstu en hefur farið fjölgandi. Venjulega dreifast frjókornin í fyrri hluta maí en í apríllok þegar vorar snemma. Asparfrjó geta valdið ofnæmi en eru ekki talin skæð.

Asparreklar

Asparreklar. ©MH[Smellið á mynd til að stækka]

Latneskt heiti: Populus spp.

Frjótími
Alaskaösp (Populus trichocarpa) blómgast snemma (apríl–maí), frjótímanum er oftast lokið upp úr miðjum maí.

Ofnæmisviðbrögð
Asparfrjó valda vægum ofnæmisviðbrögðum.

Víxlbinding
Víxlbinding er ekki þekkt (hugsanlega við víði, Salix spp.)

Heimildir:
Ásgeir Svanbergsson. Tré og runnar á Íslandi. Íslensk náttúra I, Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. 1989, 234 bls

Mary Jelks. Allergy Plants. ISBN: 0-911977-04-X, 64 bls

Polleninfo.org. Plants with airborne pollen [skoðað 16.4.2010]

Naturhistoriska riksmuseet. Allergiframkallande pollen i Sverige [skoðað 16.4.2010]

©Margrét Hallsdóttir, 16. apríl 2010.


Allir ofnæmisvaldar




Þú ert hér: Forsíða > Grasafræði > Frjómælingar > Ofnæmisvaldar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Grasafræði

  • Gróðurfar
  • Flóra
  • Válisti háplantna
  • Plöntu- og sveppasöfn
  • Gróðurkort
  • Frjómælingar
    • Frjófréttir
    • Samantekt frjómælinga
    • Fróðleikur
    • Ofnæmisvaldar
  • Flokkunarkerfi plantna
  • Rannsóknir
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica