Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Fjöruarfi (Honckenya peploides) hefur þykk og safarík blöð og vex einkum í sandfjörum við sjó. Aldin eru hnöttótt og kallast hann því stundum berjaarfi. © Erling Ólafsson

Grasafræði

Sortylyng á góðri stund
Sortulyng (Arctostaphylos uva-ursi) Ljósm. Hörður Kristinsson

Grasafræði snýst um rannsóknir á plöntum í víðum skilningi. Til plantna teljast rauðþörungar, brúnþörungar, sveppir og eiginlegar plöntur, þ.e. grænþörungar, mosar, byrkningar og blómplöntur. Í nútíma flokkunarkerfum eru sveppir flokkaðir sem sérstakt ríki þótt þeir tilheyri enn plöntum í almennu tali. Eitt meginhlutverka Náttúrufræðistofnunar Íslands er skráning á náttúru Íslands, þ.e. þeim lífverum er hér vaxa, útbreiðslu þeirra og vistfræði. Til að sinna þessu hlutverki stunda grasafræðingar stofnunarinnar rannsóknir á flokkunarfræði og vistfræði íslenskra plantna.

Í plöntuvefsjá eru ítarlegar upplýsingar um háplöntur, mosa, fléttur og sveppi, útbreiðslu þeirra og einnig staðreyndasíður sem gefa ítarlegar upplýsingar um sérhverja plöntutegund með plöntulýsingu, ljósmyndum, röðun tegundar innan flokkunarfræðinnar, upplýsingum um búsvæði og útbreiðslu og fróðleik um skaðsemi og nytjar plöntunnar.


Sviðsstjóri í grasafræði er Starri Heiðmarsson.




Þú ert hér: Forsíða > Grasafræði

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Grasafræði

  • Gróðurfar
  • Flóra
  • Válisti háplantna
  • Plöntu- og sveppasöfn
  • Gróðurkort
  • Frjómælingar
  • Flokkunarkerfi plantna
  • Rannsóknir
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica