Háplöntur
Í plöntusafni Náttúrufræðistofnunar Íslands voru rúm 66.000 sýni íslenskra háplantna í árslok 2009. Þar af um 47.500 í Reykjavík en 18.500 á Akureyri. Í Reykjavík eiga plöntusafn Ingólfs Davíðssonar og Helga Jónassonar á Gvendarstöðum stærstan hlut, samtals um 13.400 eintök, síðan koma söfn Ingimars Óskarssonar, Helga Jónssonar, Stefáns Stefánssonar, Ólafs Davíðssonar og Eyþórs Einarssonar, hvert um sig á bilinu 2.000 - 5.000 eintök. Meira en helmingi safnsins á Akureyri, eða 10.540 eintökum, söfnuðu þeir Steindór Steindórsson og Helgi Hallgrímsson. Auk þessa er áætlaður fjöldi erlendra plantna á Náttúrufræðistofnun um 18.000 eintök, mest allt óskráð.
Umsjónarmaður háplöntusafns: Hörður Kristinsson
Uppfært 22.12.2009

