Mosar
Í árslok 2009 var búið að skrá 49.000 sýni af mosasafni Náttúrufræðistofnunar Íslands. Þar af eru tæp 4.000 sýni á Akureyri en hin í Reykjavík. Áætlað er að þá séu enn óskráð um 6.000 sýni af soppmosum. Langflestum sýnum, sem hafa verið skráð, hefur Bergþór Jóhannsson safnað en Haukur Jóhannesson, Helgi Hallgrímsson og Kristbjörn Egilsson hafa einnig verið drjúgir við að safna mosum. Auk íslenskra mosa eru um 5.000 eintök af óskráðum erlendum mosasýnum á Náttúrufræðistofnun.
Umsjónarmaður mosasafns: Guðmundur Guðmundsson
Uppfært 22.12.2009

