Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Klófífa eða brok (Eriophorum angustifolium) vex í votlendi, mýrum og flóum. Hún er mjög algeng um allt land frá láglendi upp í 700-800 m hæð. © Anette Th. Meier

Sveppir

Smelltu á myndina til að stækka hana.
Mýrahnefla, Omphalina oniscus umkringd sóldögg, Drosera rotundifolia í kolli þúfu sem slapp við bruna meðan barnamosinn á hlið hennar brann til kaldra kola. Þessi Sphagnum-þúfa er í reit 3453 í Skíðsholti Mýrum á sniði E28. Sýnið er númer FA-18663 í sveppasafni Náttúrufræðistofnunar Íslands á Akureyri (AMNH). Ljósm. GGE 4. september 2006.

Í sveppasafni Náttúrufræðistofnunar Íslands voru nálægt 23.500 sýni í árslok 2006. Á Reykjavíkursetri eru um 3.000 sýni sem öll eru óskráð. Á Akureyrarsetri eru um 20.500 sýni, 13.600 skráð en 7.000 óskráð.

Á Reykjavíkursetri er safn vatnasveppa frá 1964–1973 sem Terry W. Johnson gaf stofnuninni en einnig safn sem Hið íslenska náttúrufræðifélag átti og Ólafur Davíðsson safnaði um aldamótin 1900 en Emil Rostrup greindi. Á Akureyrarsetri er varðveitt sveppasafn Helga Hallgrímssonar (a.m.k. 10.000 sýni, 8.500 þegar skráð) en auk sýnanna afhenti hann ljósmyndir og lýsingar þeirra til varðveislu. Einnig safn um 400 sýna sem danski sveppafræðingurinn Morten Lange safnaði á Suðurlandi 1959. Elstu sýnunum safnaði Ólafur Davíðsson um aldamótin 1900 en Helgi Jónsson frá Gvendarstöðum, Hálfdán Björnsson í Kvískerjum, Hörður Kristinsson, Elín Gunnlaugsdóttir og Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir hafa safnað 100–2000 sýnum hvert.

Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir er umsjónarmaður sveppasafns.




Þú ert hér: Forsíða > Grasafræði > Plöntu- og sveppasöfn > Sveppir

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Grasafræði

  • Gróðurfar
  • Flóra
  • Válisti háplantna
  • Plöntu- og sveppasöfn
    • Háplöntur
    • Mosar
    • Fléttur
    • Sveppir
    • Þörungar
  • Gróðurkort
  • Frjómælingar
  • Flokkunarkerfi plantna
  • Rannsóknir
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica