Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Rifsberjarunni (Ribes x pallidum) í blóma. Tegundin var flutt inn fyrir meira en 100 árum; er ræktuð í görðum en sáir sér nú víða í óræktaða jörð. © Margrét Hallsdóttir

Rannsóknir í flokkunarfræði og vistfræði plantna

Flokkunarfræðirannsóknirnar á Náttúrufræðistofnun Íslands beinast að því að meta hvaða tegundir finnast á landinu. Þessar rannsóknir byggja á vísindasöfnum stofnunarinnar en þar eru varðveitt eintök til staðfestingar útbreiðslu og breytileika einstakra tegunda. Vísindasöfnin eru einnig grunnur rannsókna í þróunarsögu og flokkunarfræði einstakra tegundahópa og ættkvísla.

Staða þekkingar er afar mismunandi eftir plöntuhópum. Blómplöntur og byrkningar eru vel þekktar ef undan eru skildir tegundahópar sem erfitt er að greina s.s. túnfíflar, undafíflar og augnfrór. Mosar eru sömuleiðis vel þekktir en íslenskum mosum hefur Bergþór Jóhannsson gert skil í fjölritum Náttúrufræðistofnunar Íslands. Grænþörungar eru frekar illa þekktir en brún- og rauðþörungar eru betur þekktir. Hafrannsóknastofnunin hefur einkum sinnt rannsóknum á síðastnefndu hópunum. Sveppir eru misvel þekktir en best þekktu hóparnir eru hattsveppir og sveppir sem mynda fléttur.

Plöntuvistfræðirannsóknir miða m.a. að því að greina starfsemi gróðurfélaga og meta útbreiðslu þeirra, kortleggja gróðurfélög og vistgerðir og þróa aðferðir s.s. fjarkönnun, sem létta þessa vinnu.

Sviðsstjóri í grasafræði er Starri Heiðmarsson.


Þú ert hér: Forsíða > Grasafræði > Rannsóknir

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Grasafræði

  • Gróðurfar
  • Flóra
  • Válisti háplantna
  • Plöntu- og sveppasöfn
  • Gróðurkort
  • Frjómælingar
  • Flokkunarkerfi plantna
  • Rannsóknir
    • Natura Ísland
    • Áhrif ösku á lífríki
    • Skógvist
    • Þungmálmar í mosa
    • Lífríki háhitasvæða
    • Úthagar
    • Áhrif loftlagsbreytinga
    • Ágengar tegundir
    • Mýraeldar
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica