Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Hrúðurfléttusamfélag, við Háafoss. © Anette Th. Meier

Skógvist

  • Svæði og aðferðir
  • Gróður
  • Smádýralíf
  • Fuglalíf
  • Útgefið efni

Skógrækt er ung og vaxandi atvinnugrein en hún er einnig tómstundagaman fjölda fólks og því líklegt að skógrækt muni á næstu áratugum hafa umtalsverð áhrif á lífríki og ásýnd landsins. Þrátt fyrir aukin umsvif í skógrækt hefur komið fram að rannsóknir hefur vantað til að svara mikilvægum spurningum um áhrif skógræktar á lífríki og ásýnd lands.

sitkagreni
Hér hefur sitkagreni verið plantað í mólendi í Skorradal. Þar sem skógur vex upp í landi sem þessu verða miklar breytingar á lífríki svæðisins. Ljósm. Ásrún Elmarsdóttir


Árið 2002 var hafið verkefnið SKÓGVIST í samvinnu Skógræktar ríkisins, Náttúrufræðistofnunar Íslands og Landbúnaðarháskóla Íslands. Meginmarkmið verkefnisins er að kanna breytingar sem verða á lífríki, kolefnishringrás og jarðvegsþáttum mólendis við skógrækt og þegar birkiskógur vex upp. Rannsóknir fóru fram á Fljótsdalshéraði á Austurlandi og í Skorradal og Norðurárdal á Vesturlandi. Mælingar fóru fram í mólendi og misgömlum lerki-, stafafuru-, sitkagreni- og birkiskógum. Þannig var mögulegt að kanna framvindu lífríkis eftir aldri skóganna og hvort hún er mismunandi eftir trjátegundum. Rannsóknir á breytingum á gróðurfari og dýralífi hafa m.a. verið unnar af starfsmönnum Náttúrufræðistofnunar Íslands.




Þú ert hér: Forsíða > Grasafræði > Rannsóknir > Skógvist

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Grasafræði

  • Gróðurfar
  • Flóra
  • Válisti háplantna
  • Plöntu- og sveppasöfn
  • Gróðurkort
  • Frjómælingar
  • Flokkunarkerfi plantna
  • Rannsóknir
    • Áhrif ösku á lífríki
    • Skógvist
    • Þungmálmar í mosa
    • Lífríki háhitasvæða
    • Úthagar
    • Áhrif loftlagsbreytinga
    • Ágengar tegundir
    • Mýraeldar
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica