Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Hraungambri (Racomitrium lanuginosum) er mjög algengur mosi og áberandi á öllum suður- og vesturhluta landsins; myndar víða samfelldar breiður á hraunum. © Anette Th. Meier

Ágengar innfluttar plöntur

Lúpínublóm
Lúpínublóm. Ljósm. Borgþór Magnússon.

Alþekkt er að plöntu- og dýrategundir sem fluttar eru í ný heimkynni til ræktunar eða annarra nota geta tekið að breiðast út eða sloppið úr haldi og valdið tjóni á villtri náttúru eða ræktarlandi. Aukin útbreiðsla framandi tegunda er talin ein helsta ógn við líffræðilega fjölbreytni í heiminum næst á eftir eyðileggingu búsvæða.

Að frumkvæði umhverfisráðherra tók til starfa stýrihópur á árinu 2009 sem hefur það hlutverk að finna leiðir til að draga úr neikvæðum áhrifum alaskalúpínu og skógarkerfils á náttúru Íslands. Stýrihópurinn er skipaður sérfræðingum á Náttúrufræðistofnun Íslands og Landgræðslu ríkisins. Lögð er áhersla á miðhálendið og friðlýst svæði. Sjá vefinn Ágengar tegundir

Til þess að draga úr eða koma í veg fyrir tjón af völdum ágengra tegunda var komið á fót samstarfsverkefni þjóða í Norður-Evrópu (NOBANIS). Náttúrufræðistofnun Íslands hefur tekið þátt í verkefninu fyrir Íslands hönd.

Á undanförnum árum hefur orðið vart aukinnar útbreiðslu og jafnvel sprengingar í útbreiðslu nokkurra plöntutegunda, einkum alaskalúpínu, og skógarkerfils en einnig má að risahvannir geta orðið varasamar.

Samantekt (á ensku) um vistfræði lúpínu af vefsvæði NOBANIS verkefnisins. Höf: Borgþór Magnússon.


Þú ert hér: Forsíða > Grasafræði > Rannsóknir > Ágengar tegundir

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Grasafræði

  • Gróðurfar
  • Flóra
  • Válisti háplantna
  • Plöntu- og sveppasöfn
  • Gróðurkort
  • Frjómælingar
  • Flokkunarkerfi plantna
  • Rannsóknir
    • Natura Ísland
    • Áhrif ösku á lífríki
    • Skógvist
    • Þungmálmar í mosa
    • Lífríki háhitasvæða
    • Úthagar
    • Áhrif loftlagsbreytinga
    • Ágengar tegundir
    • Mýraeldar
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica