Risahvannir (Heracleum) í íslenskri náttúru
Tröllahvönn (Heracleum mantegazzianum) er mjög stórvaxin sveipjurt sem vex villt í Kákasus-fjöllum og suðvestur Asíu, en margar tegundir eru til af þessari ættkvísl bæði vestan hafs og austan. Hún hefur verið flutt vítt um veröldina sem garðplanta, en hún þykir blómfögur og sveipurinn er oft tekinn að hausti, þurrkaður og hafður til skrauts. Tröllahvönn er mjög ágeng planta og er víða talin hið versta illgresi vegna þess að hún breiðist yfir lágvaxinn gróður, ryður honum úr vegi og myndar einsleitar breiður. Plantan er einnig eitruð og getur safi úr stönglum eða blöðum valdið útbrotum og bruna á húð.
Kjörlendi tröllahvannar er rakur og frjósamur jarðvegur og þar sem hún hefur náð fótfestu í nágrannalöndunum, hefur hún því helst breiðst út meðfram ám og lækjarbökkum.
Fleiri stórvaxnar tegundir af sömu ættkvísl, þar á meðal hestahvönn Heracleum sphondylium og bjarnarkló Heracleum stevenii, sem hafa svipaða eiginleika til að breiðast út fyrir ræktarland og er ástæða til að vara við þeim.
Risahvönnin Heracleum persicum, hefur mikið breiðst út í byggð í Norður-Noregi og er hún einkennisplanta Tromsö-bæjar þar sem hún gengur undir nafninu Tromsö-pálminn. Tegundin hefur á undanförnum áratugum verið flutt til mið og suðurhluta Noregs þar sem hún hefur komið sér fyrir og er einnig tekin að breiðast út. Hún er á lista yfir ágengar tegundir þar í landi.
Hingað til lands hafa borist nokkrar tegundir af risahvönnum. Í Grasagarðinum í Reykjavík hafa t.d. verið prófaðar 17 tegundir og undirtegundir af Heracleum. Þar er nú aðeins ræktuð tegundin H. maximum, en aðarar tegundir hafa verið upprættar, að sögn Evu G. Þorvaldsdóttur forstöðumanns.
Tröllahvönn og hestahvönn finnast víða í görðum hér á landi og hafa talsvert verið fluttar út í sumarbústaðalönd og skógargirðingar í einkaeigu. Útbreiðsla annarra tegunda er sennilega minni. Á Akureyri hefur tröllahvönn nokkuð verið ræktuð innan bæjarins og dreifst þar. Einnig hefur hún verið flutt á nokkra staði í Eyjafirði, þar sem hún hefur tekið að sá sér út. Þá hefur tegundin vaxið í Múlakoti í Fljótshlíð um áratugaskeið og m.a. verið flutt þaðan í skógræktargirðingu við Seljaland undir Eyjafjöllum, þar sem hún hefur borið fræ og dreift sér út.
Full ástæða er til að vara fólk við risahvönnum.
Tenglar um tröllahvönn og ættkvíslina Heracleum:
Frá Skógar- og náttúruverndarráðinu í Danmörk: “Kæmpe-björneklo"
Frá sænska náttúrufræðisafninu: "Jætteloka"
Frá norska tegundagangabankanum: “Tromsøpalme”
Pistill eftir Hafstein Hafliðason um "Norska pálmann" af heimasíðu Garðyrkjufélags Íslands.
Þýskur heimildalisti um Heracleum-ættkvíslina
Eituráhrif risahvanna - Af heimasíðu Magnúsar Jóhannssonar læknis og prófessors í lyfjafræði.



