Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Blóm túnfífils (Taraxacum spp.) sitja mörg saman í körfu. Hvert blóm er bæði karl- og kvenkyns. Þegar fræin þroskast nefnist karfan biðukolla. © Erling Ólafsson

Válisti háplantna


Mosaburkni (Hymenophyllum wilsonii)
Mosaburkni (Hymenophyllum wilsonii). Ljósm. Hörður Kristinsson.

Válisti er skrá yfir lífverur sem eiga undir högg að sækja, eru í útrýmingarhættu eða hefur verið útrýmt. Mikilvægt er að válistar séu byggðir á traustum gögnum eigi þeir að ná tilætluðum árangri. Við gerð válista er stuðst við viðmið Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna, IUCN en þau gera kröfur um nokkuð nákvæma vitneskju um útbreiðslu tegunda, fjölda einstaklinga og stofnstærðarbreytingar.

Á Náttúrufræðistofnun Íslands er unnið að gerð válista sem tekur til allrar lifandi náttúru landsins. Sökum mismikillar vitneskju um hinar ólíku tegundir lífvera var ákveðið að birta válistann í áföngum. Fyrsti hluti íslenska válistans kom út árið 1996 og í honum er fjallað um blómplöntur, byrkninga, fléttur, mosa og ýmsa botnþörunga. Annar hluti válistans kom síðan út árið 2000 og í honum er fjallað um fugla.

Endurskoðun á válistaflokkun háplantna hefur farið fram og var kynnt á ársfundi Náttúrufræðistofnunar Íslands árið 2008. Alls voru 79 tegundir metnar samkvæmt nýjustu skilyrðum IUCN (Alþjóða náttúruverndarsamtakanna) sem samþykkt voru árið 2000 en þau skilyrði eru nokkuð breytt frá þeim skilyrðum sem giltu þegar fyrsta útgáfa válistans kom út. Samkvæmt válistaflokkuninni lenda tegundirnar 79 sem flokkaðar voru í átta flokkum. Þar af eru 45 tegundir sem lenda á válista (þ.e. tilheyra flokkunum ER, CR, EN, VU og DD) og þær leggur Náttúrufræðistofnun Íslands til að verði friðlýstar, sbr. náttúruverndaráætlun 2009–2013. Samtímis bendir Náttúrufræðistofnun á að nokkrar friðlýstar tegundir lenda utan válista (þ.e. tilheyra flokkunum NT, LC og NA) en það á við um 6 tegundir.

Starri Heiðmarsson hefur umsjón með válista háplantna

Válisti


Útdauð á svæði (RE) Regionally Extinct (RE) Búsvæði Friðuð Uppl.
Davíðslykill Primula egaliksensis Deigt graslendi já »

Í bráðri hættu (CR) Critically Endagered (CR) Búsvæði Friðuð Uppl.
Skeggburkni Asplenium septentrionale Þurrar klettaskorur já »
Mýramaðra Galium palustre Blautar mýrar já »
Mosaburkni Hymenophyllum wilsonii Rakir, skuggsælir klettaveggir já »
Glitrós Rosa dumalis Kjarrlendi og gróðursælar hlíðar já »
Vatnsögn Tillaea aquatica Jarðhitasvæði, í volgum og votum flögum já »

Í hættu (EN) Endangered (EN) Búsvæði Friðuð Uppl.
Svartburkni Asplenium trichomanes Klettaskorur já »
Tunguskollakambur Blechnum spicant var. fallax Við jarðhita já »
Vorstör Carex caryophyllea Grasivaxnir bollar eða brekkur »
Trjónustör Carex flava Mýrar með lækjasytrum já »
Knjápuntur Danthonia decumbens Grasbrekkur já »
Burstajafni Lycopodium clavatum Lyngmóar já »
Tjarnablaðka Persicaria amphibia Grunn stöðuvötn eða tjarnir já »
Flæðarskurfa Spergularia salina Sjávarfitjar og leirur já »

Í yfirvofandi hættu (VU) Vulnerable (VU) Búsvæði Friðuð Uppl.
Lyngbúi Ajuga pyramidalis Gras og lynglautir, stundum undir klettum já »
Ljósalyng Andromeda polifolia Rakir móar og súrar mýrarþúfur »
Ginhafri Arrhenatherum elatius Graslendi »
Klettaburkni Asplenium viride Klettaskorur já »
Hrísastör Carex adelostoma Þéttgrónir hrísmóar og þýft, hálfdeigt mýrlendi »
Safastör Carex diandra Mýrar og flóar »
Heiðastör Carex heleonastes Mýrar og flóar já »
Gljástör Carex pallescens Þurrar grasbrekkur »
Hlíðaburkni Cryptogramma crispa já »
Skógelfting Equisetum sylvaticum Móar og kjarrlendi »
Sandlæðingur Glaux maritima Sjávarfitjar »
Flæðalófótur Hippuris tetraphylla Sjávarflæðatjarnir »
Fitjasef Juncus gerardii Sjávarfitjar já »
Stinnasef Juncus squarrosus Hálfdeigja »
Rauðkollur Knautia arvensis Gras- og blómlendi »
Munkahetta Lychnis flos-cuculi Deiglendi og klettahjallar »
Naðurtunga Ophioglossum azoricum Jarðhitasvæði »
Súrsmæra Oxalis acetosella Lyngmóar og urðarjaðrar já »
Stefánssól Papaver radicatum ssp. stefanssonii Hálfgrónir melar já »
Flóajurt Persicaria maculosa Jarðhitasvæði, við hveri, laugar, garða og gróðurhús »
Blæösp Populus tremula Móar og kjarrlendi »
Maríulykill Primula stricta Rök leirflög, einkum þar sem jarðvegur er grunnur yfir klöppum, deigir árbakkar »
Þyrnirós Rosa pimpinellifolia Gras- og blómlendi, jafnvel í grýttum fjallshlíðum já »
Lónajurt Ruppia maritima Ísaltar tjarnir og sjávarlón »
Fjallkrækill Sagina caespitosa Fjallamelar »
Hreistursteinbrjótur Saxifraga foliolosa Lindaseytlur eða neðan bráðnandi skafla, mest ofan 900 m y.s. já »
Blátoppa Sesleria albicans Gras- og lyngmóar »
Línarfi Stellaria borealis Deigt kjarrlendi já »
Rauðberjalyng Vaccinium vitis-idaea Lyngmóar, birkiskógur »
Laugadepla Veronica anagallis-aquatica Jarðhitasvæði, við laugar og volga læki »
Giljaflækja Vicia sepium Gras- og blómlendi »

Upplýsingar ófullnægjandi(DD) Data deficient (DD) Búsvæði Friðuð Uppl.
Keilutungljurt Botrychium minganense Sendinn jarðvegur eða frjóar grasbrekkur »
Lækjabrúða Callitriche brutia Tjarnir og lygnir lækir já »
Hveraaugnfró Euphrasia calida Jarðhitasvæði, við hveri já »
Hagabrúða Valeriana sambucifolia Deigt blóm- eða kjarrlendi »


Tegundir sem falla utan válista:


Í nokkurri hættu(NT) Near Threatened (NT) Búsvæði Friðuð Uppl.
Fjallabláklukka Campanula uniflora Hátt til fjalla, uppi á brúnum eða á grónum oft grýttum flötum »
Finnungsstör Carex nardina Fjallamelar »
Hjartafífill Crepis paludosa Snjóþungir staðir »
Grámygla Filaginella uliginosa Jarðhitasvæði »
Vatnsnafli Hydrocotyle vulgaris Við laugar, hveri og meðfram heitum lækjum »
Eggtvíblaðka Listera ovata Skóglendi og grasbollar já »
Ferlaufungur Paris quadrifolia Skóglendi, hraunsprungur og innan um stórvaxinn gróður já »
Sifjarsóley Ranunculus auricomus Brattar skriður til fjalla »
Renglutungljurt Botrychium simplex var. tenebrosum Jarðhiti en einnig kaldur sendinn jarðvegur »
Mánajurt Botrychium boreale Graslendi eða grasmóar »
Vatnalaukur Isoetes lacustris Tjarnir og grunn vötn »

Metin en ekki í hættu(LC) Low concern(LC) Búsvæði Friðuð Uppl.
Fjallalójurt Antennaria alpina Melkollar eða melbrekkur á láglendi, grýttur jarðvegur til fjalla »
Dvergtungljurt Botrychium simplex var. simplex Jarðhiti en einnig kaldur sendinn jarðvegur já »
Haustbrúða Callitriche hermaphroditica Vex á kafi í vatni, í tjarnabotnum eða laugavætlum »
Línstör Carex brunnescens Vex í grasbollum og á þurrum grundum »
Fölvastör Carex livida Vex eingöngu í rennblautum flóum »
Hagastör Carex pulicaris Hálfdeigjur »
Fjallabrúða Diapensia lapponica Á stöðum sem standa að mestu upp úr snjó á veturna »
Þrenningarmaðra Galium trifidum Votlendi eða mýrar »
Loðgresi Holcus lanatus Graslendi, brekkur, mólendi og skurðbakkar »
Mýraertur Lathyrus palustris Graslendi, deiglendi eða kjarr »
Fuglaertur Lathyrus pratensis Ræktarlegt mólendi, graslendi og skóglendi eða kjarr »
Blóðkollur Sanguisorba officinalis Grónar brekkur í giljum og utan í börðum »
Bergsteinbrjótur Saxifraga paniculata Klettaskorur, gljúfurveggir og hamrabelti »
Skógfjóla Viola riviniana Aðallega grasbrekkur og grónir bollar já »
Hnotsörvi Zannichellia palustris Grunn síki eða vatnsrásir á láglendi »

Uppfyllir ekki forsendur mats(NA) Not applicable(NA) Búsvæði Friðuð Uppl.
Villilaukur Allium oleraceum Við tún og bæi já »
Tófugras Cystopteris fragilis f. dickieana Klettaskorur, gjótur, hraunsprungur, hellar og urð »
Vatnamynta Mentha aquatica Við laugar »
Blóðmura Potentilla erecta Jarðhiti já »

Ítarlegri upplýsingar fyrir hverja plöntutegund ásamt útbreiðslukorti og ljósmyndum er hægt að fá á staðreyndasíðum. Smelltu á táknið í Upplýsingadálki válistans til að fá upp staðreyndasíðu fyrir viðkomandi tegund.

Friðlýstar plöntur

IUCN Red List of Threatened Species

 


Þú ert hér: Forsíða > Grasafræði > Válisti háplantna

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Grasafræði

  • Gróðurfar
  • Flóra
  • Válisti háplantna
    • Friðlýstar plöntur
  • Plöntu- og sveppasöfn
  • Gróðurkort
  • Frjómælingar
  • Flokkunarkerfi plantna
  • Rannsóknir
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica