Válisti háplantna
 |
| Mosaburkni (Hymenophyllum wilsonii). Ljósm. Hörður Kristinsson. |
Válisti er skrá yfir lífverur sem eiga undir högg að sækja, eru í útrýmingarhættu eða hefur verið útrýmt. Mikilvægt er að válistar séu byggðir á traustum gögnum eigi þeir að ná tilætluðum árangri. Við gerð válista er stuðst við viðmið Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna, IUCN en þau gera kröfur um nokkuð nákvæma vitneskju um útbreiðslu tegunda, fjölda einstaklinga og stofnstærðarbreytingar.
Á Náttúrufræðistofnun Íslands er unnið að gerð válista sem tekur til allrar lifandi náttúru landsins. Sökum mismikillar vitneskju um hinar ólíku tegundir lífvera var ákveðið að birta válistann í áföngum. Fyrsti hluti íslenska válistans kom út árið 1996 og í honum er fjallað um blómplöntur, byrkninga, fléttur, mosa og ýmsa botnþörunga. Annar hluti válistans kom síðan út árið 2000 og í honum er fjallað um fugla.
Endurskoðun á válistaflokkun háplantna hefur farið fram og var kynnt á ársfundi Náttúrufræðistofnunar Íslands árið 2008. Alls voru 79 tegundir metnar samkvæmt nýjustu skilyrðum IUCN (Alþjóða náttúruverndarsamtakanna) sem samþykkt voru árið 2000 en þau skilyrði eru nokkuð breytt frá þeim skilyrðum sem giltu þegar fyrsta útgáfa válistans kom út. Samkvæmt válistaflokkuninni lenda tegundirnar 79 sem flokkaðar voru í átta flokkum. Þar af eru 45 tegundir sem lenda á válista (þ.e. tilheyra flokkunum ER, CR, EN, VU og DD) og þær leggur Náttúrufræðistofnun Íslands til að verði friðlýstar, sbr. náttúruverndaráætlun 2009–2013. Samtímis bendir Náttúrufræðistofnun á að nokkrar friðlýstar tegundir lenda utan válista (þ.e. tilheyra flokkunum NT, LC og NA) en það á við um 6 tegundir.
Starri Heiðmarsson hefur umsjón með válista háplantna
Válisti
| Útdauð á svæði (RE) |
Regionally Extinct (RE) |
Búsvæði |
Friðuð |
Uppl. |
| Davíðslykill |
Primula egaliksensis |
Deigt graslendi |
já |
» |
| Í bráðri hættu (CR) |
Critically Endagered (CR) |
Búsvæði |
Friðuð |
Uppl. |
| Skeggburkni |
Asplenium septentrionale |
Þurrar klettaskorur |
já |
» |
| Mýramaðra |
Galium palustre |
Blautar mýrar |
já |
» |
| Mosaburkni |
Hymenophyllum wilsonii |
Rakir, skuggsælir klettaveggir |
já |
» |
| Glitrós |
Rosa dumalis |
Kjarrlendi og gróðursælar hlíðar |
já |
» |
| Vatnsögn |
Tillaea aquatica |
Jarðhitasvæði, í volgum og votum flögum |
já |
» |
| Í hættu (EN) |
Endangered (EN) |
Búsvæði |
Friðuð |
Uppl. |
| Svartburkni |
Asplenium trichomanes |
Klettaskorur |
já |
» |
| Tunguskollakambur |
Blechnum spicant var. fallax |
Við jarðhita |
já |
» |
| Vorstör |
Carex caryophyllea |
Grasivaxnir bollar eða brekkur |
|
» |
| Trjónustör |
Carex flava |
Mýrar með lækjasytrum |
já |
» |
| Knjápuntur |
Danthonia decumbens |
Grasbrekkur |
já |
» |
| Burstajafni |
Lycopodium clavatum |
Lyngmóar |
já |
» |
| Tjarnablaðka |
Persicaria amphibia |
Grunn stöðuvötn eða tjarnir |
já |
» |
| Flæðarskurfa |
Spergularia salina |
Sjávarfitjar og leirur |
já |
» |
| Í yfirvofandi hættu (VU) |
Vulnerable (VU) |
Búsvæði |
Friðuð |
Uppl. |
| Lyngbúi |
Ajuga pyramidalis |
Gras og lynglautir, stundum undir klettum |
já |
» |
| Ljósalyng |
Andromeda polifolia |
Rakir móar og súrar mýrarþúfur |
|
» |
| Ginhafri |
Arrhenatherum elatius |
Graslendi |
|
» |
| Klettaburkni |
Asplenium viride |
Klettaskorur |
já |
» |
| Hrísastör |
Carex adelostoma |
Þéttgrónir hrísmóar og þýft, hálfdeigt mýrlendi |
|
» |
| Safastör |
Carex diandra |
Mýrar og flóar |
|
» |
| Heiðastör |
Carex heleonastes |
Mýrar og flóar |
já |
» |
| Gljástör |
Carex pallescens |
Þurrar grasbrekkur |
|
» |
| Hlíðaburkni |
Cryptogramma crispa |
|
já |
» |
| Skógelfting |
Equisetum sylvaticum |
Móar og kjarrlendi |
|
» |
| Sandlæðingur |
Glaux maritima |
Sjávarfitjar |
|
» |
| Flæðalófótur |
Hippuris tetraphylla |
Sjávarflæðatjarnir |
|
» |
| Fitjasef |
Juncus gerardii |
Sjávarfitjar |
já |
» |
| Stinnasef |
Juncus squarrosus |
Hálfdeigja |
|
» |
| Rauðkollur |
Knautia arvensis |
Gras- og blómlendi |
|
» |
| Munkahetta |
Lychnis flos-cuculi |
Deiglendi og klettahjallar |
|
» |
| Naðurtunga |
Ophioglossum azoricum |
Jarðhitasvæði |
|
» |
| Súrsmæra |
Oxalis acetosella |
Lyngmóar og urðarjaðrar |
já |
» |
| Stefánssól |
Papaver radicatum ssp. stefanssonii |
Hálfgrónir melar |
já |
» |
| Flóajurt |
Persicaria maculosa |
Jarðhitasvæði, við hveri, laugar, garða og gróðurhús |
|
» |
| Blæösp |
Populus tremula |
Móar og kjarrlendi |
|
» |
| Maríulykill |
Primula stricta |
Rök leirflög, einkum þar sem jarðvegur er grunnur yfir klöppum, deigir árbakkar |
|
» |
| Þyrnirós |
Rosa pimpinellifolia |
Gras- og blómlendi, jafnvel í grýttum fjallshlíðum |
já |
» |
| Lónajurt |
Ruppia maritima |
Ísaltar tjarnir og sjávarlón |
|
» |
| Fjallkrækill |
Sagina caespitosa |
Fjallamelar |
|
» |
| Hreistursteinbrjótur |
Saxifraga foliolosa |
Lindaseytlur eða neðan bráðnandi skafla, mest ofan 900 m y.s. |
já |
» |
| Blátoppa |
Sesleria albicans |
Gras- og lyngmóar |
|
» |
| Línarfi |
Stellaria borealis |
Deigt kjarrlendi |
já |
» |
| Rauðberjalyng |
Vaccinium vitis-idaea |
Lyngmóar, birkiskógur |
|
» |
| Laugadepla |
Veronica anagallis-aquatica |
Jarðhitasvæði, við laugar og volga læki |
|
» |
| Giljaflækja |
Vicia sepium |
Gras- og blómlendi |
|
» |
| Upplýsingar ófullnægjandi(DD) |
Data deficient (DD) |
Búsvæði |
Friðuð |
Uppl. |
| Keilutungljurt |
Botrychium minganense |
Sendinn jarðvegur eða frjóar grasbrekkur |
|
» |
| Lækjabrúða |
Callitriche brutia |
Tjarnir og lygnir lækir |
já |
» |
| Hveraaugnfró |
Euphrasia calida |
Jarðhitasvæði, við hveri |
já |
» |
| Hagabrúða |
Valeriana sambucifolia |
Deigt blóm- eða kjarrlendi |
|
» |
Tegundir sem falla utan válista:
| Í nokkurri hættu(NT) |
Near Threatened (NT) |
Búsvæði |
Friðuð |
Uppl. |
| Fjallabláklukka |
Campanula uniflora |
Hátt til fjalla, uppi á brúnum eða á grónum oft grýttum flötum |
|
» |
| Finnungsstör |
Carex nardina |
Fjallamelar |
|
» |
| Hjartafífill |
Crepis paludosa |
Snjóþungir staðir |
|
» |
| Grámygla |
Filaginella uliginosa |
Jarðhitasvæði |
|
» |
| Vatnsnafli |
Hydrocotyle vulgaris |
Við laugar, hveri og meðfram heitum lækjum |
|
» |
| Eggtvíblaðka |
Listera ovata |
Skóglendi og grasbollar |
já |
» |
| Ferlaufungur |
Paris quadrifolia |
Skóglendi, hraunsprungur og innan um stórvaxinn gróður |
já |
» |
| Sifjarsóley |
Ranunculus auricomus |
Brattar skriður til fjalla |
|
» |
| Renglutungljurt |
Botrychium simplex var. tenebrosum |
Jarðhiti en einnig kaldur sendinn jarðvegur |
|
» |
| Mánajurt |
Botrychium boreale |
Graslendi eða grasmóar |
|
» |
| Vatnalaukur |
Isoetes lacustris |
Tjarnir og grunn vötn |
|
» |
| Metin en ekki í hættu(LC) |
Low concern(LC) |
Búsvæði |
Friðuð |
Uppl. |
| Fjallalójurt |
Antennaria alpina |
Melkollar eða melbrekkur á láglendi, grýttur jarðvegur til fjalla |
|
» |
| Dvergtungljurt |
Botrychium simplex var. simplex |
Jarðhiti en einnig kaldur sendinn jarðvegur |
já |
» |
| Haustbrúða |
Callitriche hermaphroditica |
Vex á kafi í vatni, í tjarnabotnum eða laugavætlum |
|
» |
| Línstör |
Carex brunnescens |
Vex í grasbollum og á þurrum grundum |
|
» |
| Fölvastör |
Carex livida |
Vex eingöngu í rennblautum flóum |
|
» |
| Hagastör |
Carex pulicaris |
Hálfdeigjur |
|
» |
| Fjallabrúða |
Diapensia lapponica |
Á stöðum sem standa að mestu upp úr snjó á veturna |
|
» |
| Þrenningarmaðra |
Galium trifidum |
Votlendi eða mýrar |
|
» |
| Loðgresi |
Holcus lanatus |
Graslendi, brekkur, mólendi og skurðbakkar |
|
» |
| Mýraertur |
Lathyrus palustris |
Graslendi, deiglendi eða kjarr |
|
» |
| Fuglaertur |
Lathyrus pratensis |
Ræktarlegt mólendi, graslendi og skóglendi eða kjarr |
|
» |
| Blóðkollur |
Sanguisorba officinalis |
Grónar brekkur í giljum og utan í börðum |
|
» |
| Bergsteinbrjótur |
Saxifraga paniculata |
Klettaskorur, gljúfurveggir og hamrabelti |
|
» |
| Skógfjóla |
Viola riviniana |
Aðallega grasbrekkur og grónir bollar |
já |
» |
| Hnotsörvi |
Zannichellia palustris |
Grunn síki eða vatnsrásir á láglendi |
|
» |
| Uppfyllir ekki forsendur mats(NA) |
Not applicable(NA) |
Búsvæði |
Friðuð |
Uppl. |
| Villilaukur |
Allium oleraceum |
Við tún og bæi |
já |
» |
| Tófugras |
Cystopteris fragilis f. dickieana |
Klettaskorur, gjótur, hraunsprungur, hellar og urð |
|
» |
| Vatnamynta |
Mentha aquatica |
Við laugar |
|
» |
| Blóðmura |
Potentilla erecta |
Jarðhiti |
já |
» |
Ítarlegri upplýsingar fyrir hverja plöntutegund ásamt útbreiðslukorti og ljósmyndum er hægt að fá á staðreyndasíðum. Smelltu á táknið í Upplýsingadálki válistans til að fá upp staðreyndasíðu fyrir viðkomandi tegund.
Friðlýstar plöntur
IUCN Red List of Threatened Species