Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Þrenningarfjóla (Viola tricolor) er sums staðar algeng um norðan- og vestanvert landið. Hún vex einkum á melum, í þurrum brekkum en einnig í möl og sandi. © Erling Ólafsson

Friðlýstar plöntur

Með auglýsingu nr. 184/1978 er 31 plöntutegund friðlýst.

Samkvæmt friðlýsingunni er bannað að slíta af plöntunum sprota, blöð, blóm eða rætur, traðka á þeim, grafa þær upp eða skerða á annan hátt.

Íslensk heiti Latnesk heiti Búsvæði Uppl.
Lyngbúi Ajuga pyramidalis Gras og lynglautir, stundum undir klettum »
Villilaukur Allium oleraceum Við tún og bæi »
Skeggburkni Asplenium septentrionale Þurrar klettaskorur »
Svartburkni Asplenium trichomanes Klettaskorur »
Klettaburkni Asplenium viride Klettaskorur »
Tunguskollakambur Blechnum spicant var. fallax Jarðhitasvæði »
Dvergtungljurt Botrychium simplex var. simplex Jarðhitasvæði en einnig kaldur, sendinn jarðvegur »
Lækjabrúða Callitriche brutia Tjarnir og lygnir lækir »
Trjónustör Carex flava Mýrar með lækjasytrum »
Heiðastör Carex heleonastes Mýrar og flóar »
Hlíðaburkni Cryptogramma crispa Brattar og grýttar hlíðar »
Knjápunktur Danthonia decumbens Grasbrekkur »
Hveraaugnfró Euphrasia calida Jarðhitasvæði, við hveri »
Mýramaðra Galium palustre Blautar mýrar »
Mosaburkni Hymenophyllum wilsonii Rakir, skuggsælir klettaveggir »
Fitjasef Juncus gerardii Sjávarfitjar »
Eggtvíblaðka Listera ovata Skóglendi, grasbollar og hraunsprungur »
Burstajafni Lycopodium clavatum Lyngmóar »
Súrsmæra Oxalis acetosella Lyngmóar og urðarjaðrar »
Stefánssól Papaver radicatum ssp. stefanss. Hálfgrónir melar »
Ferlaufungur Paris quadrifolia Skóglendi, hraunsprungur og stórvaxinn gróður í friðuðum hólmum »
Tjarnablaðka Persicaria amphibia Grunn stöðuvötn eða tjarnir »
Engjamura Potentilla erecta Jarðhitasvæði »
Davíðslykill Primula egaliksensis Deigt graslendi »
Glitrós Rosa dumalis Kjarrlendi og gróðursælar hlíðar »
Þyrnirós Rosa pimpinellifolia Gras- og blómlendi, jafnvel í grýttum fjallshlíðum »
Hreistursteinbrjótur Saxifraga foliolosa Lindaseytlur eða neðan bráðnandi skafla, mest ofan 900 m y.s. »
Flæðaskurfa Spergularia salina Sjávarfitjar og leirur »
Línarfi Stellaria borealis Deigt kjarrlendi »
Vatnsögn Tillaea aquatica Jarðhitasvæði, í volgum og votum flögum »
Skógfjóla Viola riviniana Grasbrekkur og grónir bollar »

Ítarlegri upplýsingar fyrir hverja plöntutegund ásamt útbreiðslukorti og ljósmyndum er hægt að fá á staðreyndasíðum. Smelltu á táknið í Upplýsingadálki til að fá upp staðreyndasíðu fyrir viðkomandi tegund.

Með vísan til heimildar í lögum nr. 44/1999 um náttúruvernd hefur umhverfisráðherra heimild til að friðlýsa jurtir eða dýr sem miklu skipir að ekki verði útrýmt.

Válisti háplantna


Þú ert hér: Forsíða > Grasafræði > Válisti háplantna > Friðlýstar plöntur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Grasafræði

  • Gróðurfar
  • Flóra
  • Válisti háplantna
    • Friðlýstar plöntur
  • Plöntu- og sveppasöfn
  • Gróðurkort
  • Frjómælingar
  • Flokkunarkerfi plantna
  • Rannsóknir
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica