Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Hrúðurfléttusamfélag, við Háafoss. © Anette Th. Meier

Hættuflokkar (IUCN)

Hættuflokkar Alþjóðanáttúruverndarsamtakanna (IUCN)

Árið 2001 gáfu Alþjóðanáttúruverndarsamtökin (IUCN)* út endurskoðaða staðla og leiðbeiningar fyrir gerð válista og eru þau viðmið nú notuð við gerð válista yfir íslenskar lífverur. IUCN-kerfið nýtur almennrar viðurkenningar og er notað mjög víða. Matskerfinu má beita á undirtegundir, tegundir, ættkvíslir og ættir lífvera á jörðinni í heild, en einnig til að flokka lífverur tiltekinna svæða eða einstakra landa eins og hér er gert. Tegundum er síðan skipað í sjö(9?) skilgreinda áhættuflokka eftir ástandi þeirra. Í íslenska válistanum er tegund og tegundir, í stað taxon, ft. taxa, sem tekur til allra áðurnefndra flokkunareininga.

Útdauð í náttúrunni (Extinct in the wild - EW)

Tegund telst vera útdauð í náttúrunni þegar hún lifir hvergi villt svo vitað sé heldur aðeins í ræktun eða í haldi, eða sem ílendur stofn/stofnar fjarri fyrri útbreiðslusvæðum. Tegund telst útdauð í náttúrunni þegar ekki finnst einn einasti einstaklingur hennar við ítarlega leit á þekktum eða líklegum búsvæðum á öllu útbreiðslusvæði hennar. Leita verður á þeim tíma sem samræmist lífsferli og lífmynd tegundarinnar.

Útdauð á svæði (Regionally Extinct - RE)

Tegund telst vera útdauð á svæði þegar enginn vafi leikur á því að síðasti einstaklingurinn sem hugsanlega er fær um að fjölga sér innan landsins (svæðisins) hefur dáið eða horfið af landinu (svæðinu).

Í bráðri hættu (Critically endangered - CR)

Tegund telst vera í bráðri hættu þegar eindregnar líkur eru á að hún verði útdauð í náttúrunni í náinni framtíð samkvæmt tilteknum forsendum.


Í hættu (Endangered - EN)

Tegund telst vera í hættu, en þó ekki í bráðri hættu, þegar mjög miklar líkur eru á að hún verði útdauð í náttúrunni í fyrirsjáanlegri framtíð, samkvæmt tilteknum forsendum.


Í yfirvofandi hættu (Vulnerable - VU)

Tegund telst vera í yfirvofandi hættu, en þó hvorki í bráðri hættu né í hættu sbr. hér að framan, ef miklar líkur eru á að hún verði útdauð í náttúrunni í framtíðinni samkvæmt tilteknum forsendum.

Ekki háðar vernd (Near threatened - NT)

Tegundir sem eru ekki háðar verndaraðgerðum, en eru nálægt því að flokkast í yfirvofandi hættu.

Aðrar tegundir (Least concern - LC)

Tegundir sem falla í hvorugan undirflokkinn hér að framan. Útbreiddar og algengar tegundir teljast til þessa flokks.

Upplýsingar ófullnægjandi (Data deficient - DD)

Tegund fellur í þennan flokk þegar upplýsingar um útbreiðslu hennar og stofnstærð eru ekki nægilegar til þess að hægt sé að meta hvort hún sé í útrýmingarhættu. Þrátt fyrir það getur lífsferill hennar verið vel þekktur að öðru leyti. Þetta er því ekki flokkur fyrir tegundir sem er ógnað eða teljast vera í nokkurri hættu.

Ekki metin (Not evaluated - NE)

Tegund telst ekki hafa verið metin ef ekki hefur ennþá verið beitt við matið þeim skilgreiningum og aðferðum sem hér hefur verið lýst.

Válisti háplantna

IUCN Red List of Threatened Species


Þú ert hér: Forsíða > Grasafræði > Válisti háplantna >

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Grasafræði

  • Gróðurfar
  • Flóra
  • Válisti háplantna
    • Friðlýstar plöntur
  • Plöntu- og sveppasöfn
  • Gróðurkort
  • Frjómælingar
  • Flokkunarkerfi plantna
  • Rannsóknir
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica