Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Magni á Fimmvörðuhálsi 22. mars 2010. © Kristján Jónasson

Trjáholur

För eftir trjáboli

Trjábolur
Afsteypa af trjábol frá Skriðnafellsnúpi á Barðaströnd (steingervingur nr. 775). Ljósm. Margrét Hallsdóttir

För eftir trjáboli, svonefndar trjáholur, eru allvíða þekktar í tertíera basaltstaflanum, en hafa ekki verið kortlagðar kerfisbundið. Þegar hraun rann frá eldstöð yfir skógi vaxið land féllu trén um koll en stundum stóðu þau keik eftir. Hraunkvikan umlukti trjábolinn sem brann oftast upp til agna og skildi eftir sig trjáholu. Seinna hafa sumar slíkar holur fyllst þegar eldumbrot endurtóku sig nærri holunni og bergkvika náði að þrengja sér inn í farið eftir trjábolinn. Þetta má sjá í Skriðnafellsnúpi á Barðaströnd og ein basaltafsteypa af trjábol þaðan er varðveitt í steingervingasafni NÍ, sjá mynd hér til vinstri. Blágrýtismyndunin á þessum slóðum er 10-12 milljón ára gömul. Á þeim tíma uxu á Íslandi fjölskrúðugir lauf- og barrskógar, einna líkastir þeim sem nú vaxa í suðausturhluta Bandaríkjanna. Afsteypan er límd saman úr 330 basaltbrotum og vitnar um allstórvaxið tré, en ummál bolsins er 106 cm

Trjáhola
Trjáholan í Stekkjaborg í landi Keldudals í Hegranesi. Undir hraunlaginu sést í rautt millilag sem er forn jarðvegur sem tréð hefur vaxið í þegar það féll undan þunga hraunstraumsins. Eftir stendur far trjábols sem var tæplega hálfur metri í þvermál. Lengd tommustokks er 52 cm. Ljósm. Margrét Hallsdóttir

Í aðrar holur hafa holufyllingar (t.d. kvarts eða kalsít) safnast og enn aðrar standa enn eftir tómar. Einna þekktastur fundarstaður trjáhola er í Norðurárdal, þar sem heitir Kotagil og er vinsæll viðkomustaður ferðamanna á leið um Norðurland. Þegar staðið er á gömlu brúnni yfir gilið, má sjá ef vel er að gáð, nokkrar holur neðst í hraunlögum tertíera basaltstaflans.

Í eftirtöldum greinum má fræðast meira um afsteypur og trjáholur:

  • Magnús Á. Sigurgeirsson og Sveinn P. Jakobsson 1997. Trjábolaafsteypur í Skriðnafellsnúpi á Barðaströnd. Náttúrufræðingurinn 67, 33–43.
  • Sigurður Þórarinsson 1966: Sitt af hverju frá síðastliðnu sumri. Náttúrufræðingurinn 36, 35–47. Ath. í greininni er Kotagil ranglega nefnt Valagil.



Þú ert hér: Forsíða > Jarðfræði > Steingervingar > Plöntusteingervingar > Trjáholur

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Jarðfræði

  • Jarðfræðikort
  • Steindir
  • Berg
  • Steingervingar
    • Plöntusteingervingar
      • Trjáholur
  • Jarðfræðisöfn
  • Rannsóknir
  • Vöktun
  • Vernd jarðminja
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica