Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Útfellingar á ösku og fuglaspor við Þórsmerkurleið, 3. júní 2010. © Kristján Jónasson

Frjófall við skógarjaðar

Vöktun frjófalls við skógarjaðar er alþjóðlegt samstarfsverkefni (Pollen Monitoring Programme - PMP) sem NÍ hóf þátttöku í árið 1997. Þrjár Tauber frjógildrur í kjarrlendi upp af Hjálmsstöðum í Laugardal hafa verið tæmdar árlega, oftast í október, unnið er úr sýnum, þau frjógreind og niðurstöður sendar í gagnabanka sem staðsettur er í Oulu í Finnlandi (Thule Institute). Þar er haldið utan um gögnin og þar hefur einnig verið þróað tæki “PMP-Tracker” sem auðveldar úrvinnslu og yfirsýn.

Niðurstöður úr frjógreiningu níu ára liggja nú fyrir hér á Íslandi. Reynslan frá Finnlandi sýnir hins vegar að 10 ára samfelldar mælingar eru lágmarks tími til að vega upp á móti sveiflum í árlegu frjófalli. Hér hafa sveiflurnar reynst miklar ár frá ári. Þess vegna er ráðgert að halda frjógildrunum úti enn um hríð.

 

Verkefnið og niðurstöður hafa verið kynntar þrisvar sinnum; fyrst á SNÍR–fundi (Starfsmannafélag Náttúrufræðistofnunar Íslands Reykjavíkursetri) 16. janúar 2002 (Frjóróf og gróður­lendi), síðan á 4. alþjóðafundi PMP í Lublin í Póllandi 25.-30. september 2002 (First results of pollen monitoring in a subalpine birch scrubland in Iceland) og loks á NARP-fundi í Skálholti 26. júní 2003 (Pollen rain at Hjálmsstaðir in Laugardalur and the vegetation history of southern Iceland).

Frjólínurit úr landi Hjálmsstaða
Frjólínurit sem sýnir niðurstöður úr frjógreiningu á mosasýnum sem tekin voru við Taubergildrurnar.


Kjarrlendi ofan við Hjálmsstaði
Taubergildra 1, horft í vestur
Birkikjarr í Laugardal, horft frá Tauber frjógildru–2 í átt að Laugarvatni. Ljósm. Margrét Hallsdóttir
Tauber frjógildra–1 er úti í miðri Krókhólsmýri, sem er umkringd lágvöxnu, þéttu birkikjarri. Myndin er tekin í vesturátt. Ljósm. Margrét Hallsdóttir
Taubergildra 2 Taubergildra 3
Tauber frjógildra–2, horft er ofan á frjógildruna. Gildran er staðsett við jaðar kjarrsins, gróður næst gildru er bláberjalyng, krækilyng, gulvíðir og starir. Ljósm. Margrét Hallsdóttir
Efsta frjógildran er í kræki- og beitilyngsmóa, stutt er í rofabarð efst á myndinni og þar norður af tekur við blásinn melur sem tekinn er að gróa upp að nýju. Ljósm. Margrét Hallsdóttir


Þú ert hér: Forsíða > Jarðfræði > Vöktun > Frjófall við skógarjaðar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Jarðfræði

  • Jarðfræðikort
  • Steindir
  • Berg
  • Steingervingar
  • Jarðfræðisöfn
  • Rannsóknir
  • Vöktun
    • Eldgos á Fimmvörðuhálsi
    • Surtsey
    • Frjófall við skógarjaðar
  • Vernd jarðminja
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica