Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Hitakærar örverur í leirhver, Þeistareykjum. © Kristján Jónasson

Jarðfræðikort

Jarðfræðikort sýna aldur og gerð þeirra jarðlaga sem Ísland er gert úr ásamt atriðum sem tengjast uppbyggingu landsins s.s. gígum og brotalínum auk annarra þátta s.s. jarðhita, steingervinga, halla og fl.

Jarðfræðikort er eitt stærsta verkefni sem Náttúrufræðistofnun Íslands vinnur og hefur unnið að allt frá því Guðmundur Kjartansson gaf út fyrsta jarðfræðikortið 1962. Gögn sem nýtt eru til að gera jarðfæðikortin koma frá rannsóknum fjölmargra aðila og er mikil samvinna við aðrar stofnanir við öflun gagna. Jarðfræðikort sem unnin eru á Náttúrufræðistofnun eru í ýmsum mælikvörðum, en mælikvarðar 1:500.000 og 1:250.000 eru þeir kvarðar sem mest hafa verið notaðir til þessa.

Yfirlitskort af öllu Íslandi í kvarða 1:500.000

Jarðfræðikort af Íslandi, berggrunnur og höggunarkort, í mælikvarða 1:600.000 komu út í ágúst 2009. Kortin eru byggð á sambærilegum kortum í mælikvarða 1:500.000 útgefnum af Náttúrufræðistofnun Íslands 1998. Ekki er um nýja kortlagningu að ræða, en gerðar voru ýmsar lagfæringar og leiðréttingar. Nýju kortin eru með skyggingu til þess að draga betur fram landslag. Auk skýringa á íslensku og ensku, fylgja nú einnig skýringar á frönsku og þýsku. Á bakhlið kortanna eru nú ljósmyndir og stuttar lýsingar á fjórum tungumálum á þeim einingum og fyrirbærum sem koma fram á kortunum.

Mörg sérkort hafa verið gefin út sérstaklega eða sem hluti af greinum eða skýrslum s.s. :

Hekla

Höfundur: Guðmundur Kjartansson

Útgefið: 1945 (í árbók FÍ)

 

Tröllaskagi

Höfundur: Haukur Jóhannesson

Útgefið: 1991 (í árbók FÍ)

 

Jarðfræðikort af Surtsey 1:5000

Höfundur: Sveinn Jakobsson

Útgefið: 2000




Þú ert hér: Forsíða > Jarðfræði > Jarðfræðikort

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Jarðfræði

  • Jarðfræðikort
  • Steindir
  • Berg
  • Steingervingar
  • Jarðfræðisöfn
  • Rannsóknir
  • Vöktun
  • Vernd jarðminja
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica