Beint í leiðarkerfi vefsins.
Á undanförnum áratugum hafa safnast upp borkjarnar hjá Orkustofnun, Landsvirkjun, Vegagerðinni og ýmsum fleiri aðilum sem hafa staðið fyrir jarðborunum í rannsóknaskyni. Á síðustu fimm árum hafa þessir aðilar sent borkjarnana til varanlegrar geymslu hjá Náttúrufræðistofnun ásamt tiltækum upplýsingum. Í ráði er að samræma og færa allar upplýsingar um þessa borkjarna í gagnagrunn sem nýst gæti jarðfræðingum hvort heldur er í jarðlagafræði, berg- eða steindafræði.