Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Þórsmerkurrani 3. júní 2010, öskufall. © Kristján Jónasson

Kísilríkt berg

Kísilríkt telst það storkuberg sem inniheldur meira en 63% kísiloxíð (SiO2).Kísilríkt berg

Á Íslandi er kísilríkt berg að mestu bundið við megineldstöðvar. Mest er um rýólít (líparít), en einnig má finna dasít, trakýt og míkrógranít. Sumar þessara bergtegunda geta einnig komið fyrir sem ljós vikur og gjóskulög, flikruberg, hrafntinna, perlusteinn, biksteinn og granófýr.

Rýólíti má skipta í alkalí-rýólít og lágalkalí-rýólít eftir samsetningu. Alkalí-rýólít og trakýt finnst í þeim eldstöðvum sem aðallega gjósa alkalíbasalti og millibasalti, lágalkalí-rýólít og dasít þar sem þóleiít og ólivínþóleiít eru meginbergtegundir. Helstu frumsteindir í kísilríku bergi á Íslandi eru: Plagíóklas, anortóklas eða sanidín, ágít, fayalít og magnetít. Kvars er sjaldgæft í gosbergi, en finnst í djúpbergi.

Markmið verkefnisins sem unnið er af Kristjáni Jónassyni, jarðfræðingi, er að rannsaka samsetningu og dreifingu kísilríks bergs á Íslandi og að skoða mismunandi hugmyndir um myndun þess. Áhersla er lögð á yngri myndanir landsins. Notast er við sýni úr steinasafni Náttúrufræðistofnunar og nýjum sýnum bætt við. Aðal- og snefilefni eru greind í bergi og steindum, auk þess sem teknar eru saman aðrar greiningar á efnasamsetningu bergs, samsetningu steinda og samsætumælingar.

Niðurstöður verkefnisins hafa m.a. verið birtar í:

  • Kristján Jónasson 2006. Silicic volcanism in Iceland: Composition and distribution within the active volcanic zones. J. Geodyn., doi: 10.1016/j.jog.2006.09.004.   
  • Kristján Jónasson 2005. Magmatic evolution of the Heiðarsporður ridge, NE-Iceland. J. Volcanol. Geotherm. Res., 147, 109-124.
  • Kristján Jónasson 1994. Rhyolite volcanism in the Krafla central volcano, north-east Iceland. Bull. Volcanol., 56, 516-528.
  • Kristján Jónasson, P.M. Holm & A.K. Pedersen 1992. Petrogenesis of silicic rocks from the Króksfjördur central volcano, NW Iceland. J. Petrol., 33, 1345-1369.



Þú ert hér: Forsíða > Jarðfræði > Rannsóknir > Kísilríkt berg

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Jarðfræði

  • Jarðfræðikort
  • Steindir
  • Berg
  • Steingervingar
  • Jarðfræðisöfn
  • Rannsóknir
    • Eldstöðvar á Suðurlandi
    • Frjókornamælingar
    • Jöklabreytingar á síðasta jökulskeiði
    • Jöklar á Tröllaskaga
    • Kísilríkt berg
    • Skriðuföll á Íslandi
    • Steindafylki og efnajafnvægi
    • Gosvirkni Vesturgosbeltisins
    • Myndun móbergs í Surtsey
  • Vöktun
  • Vernd jarðminja
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica