Loftsteinar

Í steinasafni Náttúrufræðistofnunar Íslands er að finna sýni af loftsteinum, auk tektíta og tunglsteina, alls 28 sýni. Loftsteinar eru flokkaðir í þrjár megintegundir; steinloftsteina, járnloftsteina og stein-járnloftsteina.

Steinloftsteinar skiptast í chondríta og achondríta. Um það bil 9/10 af öllum loftsteinum sem falla á jörðina eru chondrítar, en þeir einkennast af því að vera byggðir upp af kúlulaga ‘chondrúlum’. Talið er að þeir samsvari því efni sem jörðin myndaðist úr fyrir um 4550 milljón árum. Í steinasafni NÍ eru fimm sýni af slíkum loftsteinum. Þrjú þeirra eru af kolefnis chondrítum (carbon chondrites), eitt ólivín-hýpersten chondrít og eitt ólivín-bronsít chondrít. Achondrítar eru úr bergi sem líkist skorpubergi á jörðinni, yfirleitt basalti. Sýnt hefur verið fram á að sumir þeirra komi frá Tunglinu og frá Mars.

Járnloftsteinar eru að mestu úr járni og nikkel. Þeir hafa myndast í kjörnum stórra loftsteina eða reikistjarna og svipar til efnis í kjarna jarðarinnar. Þeir eru flokkaðir eftir efnasamsetningu og áferð. Í steinasafni NÍ eru til sex sýni af járnloftsteinum, fjögur af grófu octahedríti og tvö af medíum octahedríti.

Stein-járnloftsteinar eru blöndur af ofangreindum tegundum. Í steinasafni NÍ eru tvö sýni af pallasíti, sem er blanda af járn-nikkel málmi og ólivíni. Þau eru sennilega mynduð á mótum málmkjarna og grjótmöttuls í stórum loftsteini eða reikistjörnu. Þess má geta að ólivínkristallar úr öðru þeirra, Omolon loftsteininum frá Rússlandi, hafa verið aldursgreindir. Aldur þeirra reyndist vera 5700 milljón ár, eða meira en þúsund milljón árum eldri en jörðin.

Í steinasafninu eru einnig ellefu sýni af tektítum. Tektítar eru glerperlur sem talið er að myndist þegar stórir loftsteinar falla til jarðar. Samsetning þeirra bendir til að efnið sé upprunnið á jörðinni og þeir eru því ekki eiginleigir loftsteinar. Þeir eru sennilega úr efni sem hefur bráðnað við áreksturinn, þeyst upp í loftið og storknað sem glerperlur. Þeim eru oft gefin nöfn eftir þeim svæðum sem þeir finnast á.

Berg frá Tunglinu er einnig að finna í steinasafninu. Það eru tvö sýni, annað (4 molar) frá Apollo 11 leiðangrinum til Mare Tranquillitatis, hitt (1 moli) frá Apollo 17 leiðangrinum til Taurus Littrow dalsins við Mare Serenitatis. Þessi sýni eru af tunglbasalti. Því svipar nokkuð til basalts á jörðinni, en innihaldur mun minna natríum og hefur lægra oxunarstig.



 

 

Efra hliðarval


Útlit síðu: