Sögusafn
Hér er um að ræða berg- og steindasýni sem eru áhugaverð frá sögulegum sjónarhóli. Merkasti hlutinn eru steinasýni sem Jónas Hallgrímsson, skáld og náttúrurfræðingur, safnaði á Íslandi á árunum 1839 til 1841. Þessi sýni voru geymd í Menntaskólanum í Reykjavík fram til ársins 1971 og höfðu þá verið notuð til kennslu í um 130 ár. Þá er þarna merkt steinasafn sem Magnús Grímsson safnaði um 1845 til 1850. Magnús varð seinna þekktur fyrir söfnun þjóðsagna og ævintýra, ásamt Jóni Árnasyni. Af öðrum sýnum má nefna steina sem Þorvaldur Thoroddsen, Helgi Pjeturss og Benedikt Gröndal söfnuðu.


