Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Magni á Fimmvörðuhálsi 22. mars 2010. © Kristján Jónasson

Steingervingasafn

Steingervingasafn Náttúrufræðistofnunar Íslands hefur að geyma steingervinga frá velflestum þekktum fundarstöðum á landinu. Þar er einnig að finna erlenda steingervinga, nokkrir þeirra komu úr skólasafni Menntaskólans í Reykjavík, aðrir hafa verið keyptir til safnsins í fræðsluskyni einnig hefur safninu áskotnast gripi í skiptum við erlend söfn og sem gjafir. Sérstök safndeild, Originalar, geymir íslenska steingervinga sem myndir hafa birst af og fjallað hefur verið um á prenti. Þá er þar tegundasafn blaða og aldina erlendra trjátegunda sem í dag lifa á suðlægum slóðum en uxu á Íslandi á Tertíer eða fyrir allt að 15 milljónum ára.

Steingervingasafnið er skráð í gagnagrunn Jarðfræðisviðs Náttúrufræðistofnunar Íslands og stefnt er að því að gera það aðgengilegt í gagnavefsjá NÍ.

Umsjónarmaður steingervingasafns Náttúrufræðistofnunar er Margrét Hallsdóttir.

Deildir og undirsöfn steingervingasafns

Fjöldi skráninga

Originalar

622

Steingervingar:
Safn Guðmundar G. Bárðarsonar

661

Safn Guðmundar G. Bárðarsonar, viðmiðunarsafn

341

Svæðasafn, dýrasteingervingar

2.274

Svæðasafn, plöntusteingervingar

3.026

Erlent svæðasafn

827

Sögusafn

2

Tegundasafn

970

Safn Carbon-14 sýna

70

Samtals

8.803

Staða safnsins í ágúst 2010


Frekari fróðleikur um steingervingasafnið.


Þú ert hér: Forsíða > Jarðfræði > Jarðfræðisöfn > Steingervingasafn

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Jarðfræði

  • Jarðfræðikort
  • Steindir
  • Berg
  • Steingervingar
  • Jarðfræðisöfn
    • Steinar
    • Steingervingasafn
  • Rannsóknir
  • Vöktun
  • Vernd jarðminja
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica