Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Pöddur skoðaðar í víðsjá á Vísindavöku 2009. © Anette Th. Meier

Árangur birkisáninga - dæmi frá Gunnarsholti á Rangárvöllum

Sigurður H. Magnússon

Sigurður H. Magnússon gróðurvistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun flytur erindi sitt „Árangur birkisáninga - dæmi frá Gunnarsholti á Rangárvöllum“ á Hrafnaþingi miðvikudaginn 20. janúar.

Birki (Betula pubescens Ehrh.) er eina innlenda trjátegundin sem myndar skóglendi hér á landi. Birkið getur komið snemma inn í framvindu og er meðal frumherja á jökulaurum við Skaftafellsjökul.

Áætlað hefur verið að við upphaf landnáms hafi birkiskógar og kjarr klætt meira en fjórðung landsins. Birkiskógarnir eyddust hins vegar hratt á fyrstu öldum Íslandsbyggðar og nú á tímum er birkiskóga aðeins að finna á um 1200 km2 lands. Á síðustu áratugum hefur verið mikill áhugi á að endurheimta hluta þessara fornu skóga. Gróðursetning ungplantna er sú aðferð sem mest hefur verið notuð en fræsáningu hefur einnig verið beitt í minna mæli.

Vísir að birkiskógi í Gára á Rangárvöllum Árangur birkisáningar í uppgrætt land
Vísir að birkiskógi í Gára á Rangárvöllum. Sáð var í svæðið árið 1994. Ljósm. Sigurður H. Magnússon 17. júní 2008. Árangur birkisáningar í uppgrætt land við Reyðarvatnsréttir á Rangárvöllum. Sáð var í landið haustið 1994. Ljósm. Borgþór Magnússon 25. maí 2008.

Á fyrri hluta 20. aldar voru nokkrar tilraunir gerðar til að endurheimta birkiskóga með sáningu fræs. Dæmi um árangursríkar sáningar frá þessum tíma má sjá í Haukadal í Biskupstungum, í Vatnsdal og í Gunnlaugsskógi í Gunnarsholti á Rangárvöllum.

Sáning birkis til landgræðslu lá að mestu niðri fram undir 1990 en þá hófust tilraunir með sáningu birkis á ný í margs konar land. Niðurstöður tilraunanna sýndu m.a. að einna bestur árangur náðist þar sem land var hálfgróið eða með mjög þunnu gróðurlagi (<1 cm). Hins vegar var lítill árangur af sáningu í algróið land eða þar sem yfirborð er óstöðugt. Niðurstöður þessara rannsókna bentu einnig til þess að víðiplöntur hefðu mjög jákvæð áhrif á lífslíkur og vöxt ungra birkiplantna.

Í framhaldi af þessum tilraunum hefur birki verið sáð á allmörgum stöðum á landinu til að endurheimta skóglendi. Í erindinu verða sýnd dæmi um árangur sáninga á Hrunamannaafrétti og á Rangárvöllum. Greint verður sérstaklega frá árangri sáningar í Gára í landi Gunnarsholts. Þar blés land upp í lok 19. aldar en var síðar grætt upp með grassáningum og áburðargjöf. Á árunum 1992 og 1994 var birki sáð í Gára og er þar nú kominn vísir að birkiskógi.




Þú ert hér: Forsíða > Miðlun og þjónusta > Hrafnaþing > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Miðlun og þjónusta

  • Kynning og fræðsla
  • Bókasafn
  • Hrafnaþing
    • Vetur 2010-2011
    • Vetur 2009-2010
    • Vetur 2008-2009
    • Vetur 2007-2008
    • Vetur 2006-2007
    • Vetur 2005-2006
    • Vetur 2004-2005
    • Vetur 2003-2004
    • Vor 2003
  • Útgáfa
  • Afgreiðsla
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica