Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Bókasafn, Náttúrufræðistofnun Íslands. © Anette Th. Meier

Flokkun og verndargildi gróðurs og landgerða á háhitasvæðum á Íslandi

Ásrún Elmarsdóttir

Ásrún Elmarsdóttir plöntuvistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun flytur erindi sitt og Olgu Kolbrúnar Vilmundardóttur „Flokkun og verndargildi gróðurs og landgerða á háhitasvæðum á Íslandi“ miðvikudaginn 10. mars næstkomandi.

Háhitasvæði landsins liggja öll á gosbeltum landsins og eru um tuttugu talsins. Bæði innanlands og utan er í vaxandi mæli litið til þeirra sem álitlegra kosta til virkjunar jarðvarma en einnig eru þau mikilvæg út frá sjónarhorni útivistar og náttúruverndar. Jarðhiti er sá umhverfisþáttur sem einkennir háhitasvæðin einna mest og skapar aðstæður sem eru ólíkar umhverfinu í kring. Þessar aðstæður geta haft bæði neikvæð og jákvæð áhrif á lífverur og ráða miklu um hvaða tegundir þrífast. Hér á landi finnast plöntutegundir sem bundnar eru hita í jarðvegi og aðrar sem sækja í hitann en einnig skapar jarðhitinn hagstæð skilyrði fyrir tegundir sem annars finnast einvörðungu á hlýrri landsvæðum.

Hveramoslendi Hveragraslendi
Hveramoslendi með blóðbergi og skriðlíngresi við Geysi. Ljósm. Ásrún Elmarsdóttir. Hveragraslendi með tágamuru og blákollu við Geysi. Ljósm. Ásrún Elmarsdóttir.

Í tengslum við 2. áfanga rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarðvarma var gróður rannsakaður á háhitasvæðum landsins á árunum 2005-2008. Eitt meginmarkmiðið var að skilgreina og lýsa gróðurfélögum og landgerðum sem eru undir áhrifum jarðhitans og hefur ekki áður verið lýst við hefðbundna gróðurkortagerð hér á landi. Gróður var rannsakaður á afmörkuðum mælingasvæðum á 17 háhitasvæðum og 15 undirsvæðum þeirra. Þar var land kortlagt, gróðri lýst, háplöntur skráðar og safnað sýnum af mosum og fléttum. Jafnframt var hiti í jarðvegi mældur. Verkefninu lauk á haustmánuðum 2009 og á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar eru aðgengilegar lokaskýrslur verkefnisins.

Hveravotlendi
Hveravotlendi með skriðlíngresi og mýradúnurt í Grændal. Ljósm. Ásrún Elmarsdóttir.

Í verkefninu voru ákvörðuð níu hveragróðurfélög og þeim skipt niður í þrjá meginflokka, þ.e. hveramoslendi (fjögur gróðurfélög), hveragraslendi (tvö gróðurfélög) og hveravotlendi (þrjú gróðurfélög). Auk þess voru greindar þrjár landgerðir; hveraleir, hverahrúður og hraun með útfellingum. Nokkur munur er á gróðurfari á milli svæða og sýndu niðurstöðurnar að mikill munur var eftir hæð yfir sjó, úrkomu og raka í jarðvegi. Einnig var munur á fjölbreytileika hveragróðurfélaga og landgerða, fjölda skráðra tegunda, válistategunda, jarðhitategunda og hitakærra tegunda á milli svæða.  

 




Þú ert hér: Forsíða > Miðlun og þjónusta > Hrafnaþing > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Miðlun og þjónusta

  • Kynning og fræðsla
  • Bókasafn
  • Hrafnaþing
    • Vetur 2010-2011
    • Vetur 2009-2010
    • Vetur 2008-2009
    • Vetur 2007-2008
    • Vetur 2006-2007
    • Vetur 2005-2006
    • Vetur 2004-2005
    • Vetur 2003-2004
    • Vor 2003
  • Útgáfa
  • Afgreiðsla
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica