Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Bókasafn, Náttúrufræðistofnun Íslands. © Anette Th. Meier

Sameindaerfðafræði notuð til að meta líffræðilega fjölbreytni

Kristinn P. Magnússon

Dr. Kristinn P. Magnússon líffræðingur hjá Náttúrufræðistofnun flytur erindi sitt „Sameindaerfðafræði notuð til að meta líffræðilega fjölbreytni“ miðvikudaginn 28. apríl næstkomandi.

Árið 2010 er alþjóðlegt ár líffræðilegrar fjölbreytni og er hvatning Sameinuðu þjóðanna til stjórnvalda um allan heim um að framfylgja samningi um líffræðilega fjölbreytni frá 1992. Líffræðileg fjölbreytni hefur verið uppspretta þróunar lífs á jörðinni í þrjá og hálfan milljarð ára, og er jafnframt forsenda lífsviðurværis mannsins á jörðinni sem verður aðeins viðhaldið með sjálfbærri nýtingu. Líffræðileg fjölbreytni er einnig hráefni þróunar og grundvöllur þess að lífverur og vistkerfi geti aðlagast breyttum aðstæðum eins og loftslagsbreytingum. Aldrei í sögu jarðar hefur lífi á jörðinni hnignað jafn hratt eins og núna í dag. Tegundir lífvera týna tölunni á hundruðföldum hraða samanborið við það sem áður gerðist fyrir tíma mannsins. Á hverju ári er tugum þúsunda tegunda fórnað til þess eins að rýma fyrir okkur. Hvernig getum við spornað við og snúið við þessari öfugþróun?

Brautir í gegnum lúpínubreiður í Hrísey Votlendi
Lúpína og skógarkerfill eru framandi ágengar tegundir sem geta ógnað líffræðilegri fjölbreytni. Myndin er tekin í Hrísey þar sem báðar plönturnar eru farnar að ógna öðrum gróðri. Ljósm. Rannveig Thoroddsen. Votlendi eru mikilvæg landgerð á Íslandi, þau geta haft afgerandi áhrif á hringrásir vatns og næringarefna, ásamt því að auka verulega við líffræðilega fjölbreytni viðkomandi svæðis. Ljósm. Borgþór Magnússon.

Meginástæða útrýmingar tegunda og skerðingar á líffræðilegri fjölbreytni eru breytingar af mannavöldum á vistfræðilegum eiginleikum stofna, búsvæðum þeirra, og vegna ágengra framandi tegunda. Verndunarlíffræði sem er ört vaxandi fræðigrein kom fram á sjónarsviðið um sama leyti og hugtakið „líffræðileg fjölbreytni“ í upphafi 9. áratugar 20. aldar og er þverfagleg sem tengir saman líffræði, hagfræði og auðlindastjórnun. Þau svið innan líffræðinnar sem fást við líffræðilega fjölbreytni og eru mikið í sviðsljósinu núna eru verndunarvistfræði, verndunarerfðafræði, endurreisnarvistfræði og visterfðafræði. Grunneining líffræðilegrar fjölbreytni er erfðabreytileiki einstaklingsins. Stofnar, tegundir, ættkvíslir og heilu vistkerfin standa og falla með fjölbreytileika erfðamengja þeirra. Magn erfðabreytileika innan stofns gefur innsýn í lýðfræðilega byggingu og þróunarsögu stofns. Þannig er skortur á erfðabreytileika til vitnis um að stofn hafi hrunið, á meðan mikill erfðabreytileiki í stofni er til marks um heilbrigða blöndun á erfðabreytileika. Hvað er hægt að ganga nærri tegundum eða vistkerfum og hversu mikið má raska búsvæðum án þess að það bitni á framtíð þeirra? Hvers konar gögn koma best að notum við mat á ástandi tegunda og vistkerfa? Hvernig viðhöldum við líffræðilegri fjölbreytni á Íslandi? Þessar áleitnu spurningar verða til umfjöllunar í fyrirlestrinum með sameindaerfðafræðina að leiðarljósi.




Þú ert hér: Forsíða > Miðlun og þjónusta > Hrafnaþing > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Miðlun og þjónusta

  • Kynning og fræðsla
  • Bókasafn
  • Hrafnaþing
    • Vetur 2011-2012
    • Vetur 2010-2011
    • Vetur 2009-2010
    • Vetur 2008-2009
    • Vetur 2007-2008
    • Vetur 2006-2007
    • Vetur 2005-2006
    • Vetur 2004-2005
    • Vetur 2003-2004
    • Vor 2003
  • Útgáfa
  • Afgreiðsla
  • Tilkynningar og fyrirspurnir
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica