Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Tímaritin Bliki og Náttúrufræðingurinn. © Anette Th. Meier

Sameindaerfðafræði til að meta líffræðilega fjölbreytni

Kristinn P. Magnússon

Dr. Kristinn P. Magnússon sameindaerfðafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun flytur erindi sitt Sameindaerfðafræði notuð til að meta líffræðilega fjölbreytni á Hrafnaþingi miðvikudaginn 23. mars kl. 15:15.

Árið 2010 var alþjóðlegt ár líffræðilegrar fjölbreytni og er hvatning Sameinuðu þjóðanna til stjórnvalda um allan heim um að framfylgja samningi um líffræðilega fjölbreytni frá 1992. Líffræðileg fjölbreytni hefur verið uppspretta þróunar lífs á jörðinni í þrjá og hálfan milljarð ára, og er jafnframt forsenda lífsviðurværis mannsins á jörðinni sem verður aðeins viðhaldið með sjálfbærri nýtingu. Líffræðileg fjölbreytni er einnig hráefni þróunar og grundvöllur þess að lífverur og vistkerfi geti aðlagast breyttum aðstæðum eins og loftslagsbreytingum. Aldrei í sögu jarðar hefur líffræðilegum fjölbreytileika á jörðinni hnignað jafn hratt eins og núna. Tegundir lífvera týna tölunni á hundruðföldum hraða samanborið við það sem gerðist fyrir tíma mannsins. Meginástæða útrýmingar tegunda eru breytingar af mannavöldum á vistfræðilegum eiginleikum stofna, búsvæðum þeirra, og vegna ágengra framandi tegunda. Verndunarlíffræði sem er ört vaxandi fræðigrein kom fram á sjónarsviðið um sama leyti og hugtakið „líffræðileg fjölbreytni“ í upphafi 9. áratugar 20. aldar og er þverfagleg sem tengir saman líffræði, hagfræði og auðlindastjórnun. Þau svið innan líffræðinnar sem fást við líffræðilega fjölbreytni og eru mikið í sviðsljósinu núna eru verndunarvistfræði, verndunarerfðafræði, endurreisnarvistfræði og visterfðafræði.  

Grunneining líffræðilegrar fjölbreytni í stofni er erfðabreytileiki einstaklingsins. Stofnar, tegundir, ættkvíslir og heilu vistkerfin standa og falla með fjölbreytileika erfðamengja einstaklinganna. Erfðabreytileiki stofns gefur innsýn í lýðfræðilega byggingu og þróunarsögu stofns. Þannig er skortur á erfðabreytileika til vitnis um að stofn hafi hrunið, á meðan mikill erfðabreytileiki í stofni er til marks um heilbrigða blöndun á erfðabreytileika.

Í fyrirlestrinum verður sagt fá hvernig framfarir í raðgreiningu hefur fætt af sér nýja fræðigrein erfðamengisvistfræði sem tekur fyrir erfðafræði aðlögunar og vistfræðilega víxlverkun sem aldrei fyrr. Með henni er hægt að bera saman erfðamengi þúsunda einstaklinga einnar tegundar. Erfðarannsóknir takmarkast ekki lengur við raðgreind tilraunamódel lífvera, heldur er hægt að rannsaka náttúrulega stofna beint, og svara spurningum vistfræðinnar og þróunarfræðinnar með hjálp erfðamengisskimunar. Hvað er hægt að ganga nærri tegundum eða vistkerfum og hversu mikið má raska búsvæðum án þess að það bitni á framtíð þeirra? Hvers konar gögn koma best að notum við mat á ástandi tegunda og vistkerfa? Hvernig viðhöldum við líffræðilegri fjölbreytni á Íslandi? Þessar áleitnu spurningar verða til umfjöllunar í fyrirlestrinum með sameindaerfðafræðina að leiðarljósi.

Brautir í gegnum lúpínubreiður í Hrísey fálkinn
Lúpína og skógarkerfill eru framandi ágengar tegundir sem geta ógnað líffræðilegri fjölbreytni. Myndin er tekin í Hrísey þar sem báðar plönturnar eru farnar að ógna öðrum gróðri. Ljósm. Rannveig Thoroddsen. Rannsóknir á erfðamengjum villtra dýra munu gegna mikilvægu hlutverki í verndarlíffræði til að meta erfðabreytileika og finna litningasvæði sem svarar vali í aðlögun. Ljósm. Jóhann Óli Hilmarsson.


Upptaka af erindinu

Dagskrá Hrafnaþings


Þú ert hér: Forsíða > Miðlun og þjónusta > Hrafnaþing > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Miðlun og þjónusta

  • Kynning og fræðsla
  • Bókasafn
  • Hrafnaþing
    • Vetur 2011-2012
    • Vetur 2010-2011
    • Vetur 2009-2010
    • Vetur 2008-2009
    • Vetur 2007-2008
    • Vetur 2006-2007
    • Vetur 2005-2006
    • Vetur 2004-2005
    • Vetur 2003-2004
    • Vor 2003
  • Útgáfa
  • Afgreiðsla
  • Tilkynningar og fyrirspurnir
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica