Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Teiknimyndasamkeppni, 16. janúar 2010. © AThM

Um hvítabirni og komur þeirra til Íslands

Karl Skírnisson
Karl Skírnisson.

Karl Skírnisson, dýrafræðingur á Tilraunastöðinni á Keldum, flytur erindi sitt um hvítabjarnarkomur á Íslandi, á Hrafnaþingi miðvikudaginn 11. apríl kl. 15:15.

Í erindinu verður fjallað um hvítabirni og komur þeirra til Íslands. Greint verður frá niðurstöðum krufninga á fjórum dýrum sem synt hafa hingað til lands á undanförnum fjórum árum. Fimmta dýrið til umfjöllunar er björn sem aflífaður var við hafísjaðarinn norður af landinu í sumarbyrjun 1993. Rannsóknirnar hafa meðal annars beinst að athugunum á kynþroska, ásigkomulagi og aldri. Þá hefur leit verið gerð að sníkjudýrum og fannst tríkínan Trichinella nativa í vefjum tveggja bjarnanna. Uppruni fæðuleifa í meltingarvegi var einnig greindur. Sýni hafa verið tekin úr dýrunum fyrir erlenda samverkamenn, til dæmis til mælinga á eiturefnum og til að kanna skyldleika hvítabjarna innan Austur-Grænlandsstofnsins sem og tengsl við aðliggjandi stofna. Að endingu eru nefndar mögulegar ástæður þess að hvítabirnir yfirgefa náttúruleg heimkynni sín við Austur Grænland og leggja í ferðalög sem ávallt hafa reynst vera feigðarflan þegar stefnan var tekin á Ísland.

Birt var grein í Náttúrufræðingnum, Um aldur og ævi hvítabjarna, eftir Karl Skírnisson (pdf, 6,16 MB).

Loppa hvítabjarnar
Hvassar klær eru nauðsynlegar þegar hremma á sel en selir eru langmikilvægasta fæðuuppspretta hvítabjarna. Ljósm. Karl Skírnisson.

Tennur hvítabjarnar
Hægt er að ráða í lífssögu hvítabjarna með því að skoða þunnsneiðar úr tannrótum. Ljósm. Karl Skírnisson.

Þorvaldur Þór Björnsson og Karl Skírnisson við hvítabjarnarskrokk

Þorvaldur Þór Björnsson og Karl Skírnisson við skrokk af hvítabirni. Ljósm. Karl Skírnisson.


 
Upptaka af erindinu



Þú ert hér: Forsíða > Miðlun og þjónusta > Hrafnaþing > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Miðlun og þjónusta

  • Kynning og fræðsla
  • Bókasafn
  • Hrafnaþing
    • Vetur 2011-2012
    • Vetur 2010-2011
    • Vetur 2009-2010
    • Vetur 2008-2009
    • Vetur 2007-2008
    • Vetur 2006-2007
    • Vetur 2005-2006
    • Vetur 2004-2005
    • Vetur 2003-2004
    • Vor 2003
  • Útgáfa
  • Afgreiðsla
  • Tilkynningar og fyrirspurnir
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica