Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Teiknimyndasamkeppni, 16. janúar 2010. © AThM

Flokkun vistgerða með fjarkönnun

29. nóvember 2006

Regína Hreinsdóttir

Regína Hreinsdóttir, landfræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands.

Í erindinu var sagt frá niðurstöðum rannsóknar sem unnin var á Vesturöræfum og Brúardölum til að kanna möguleika á nýtingu fjarkönnunar (SPOT-5) við kortlagningu vistgerða á hálendi Íslands. Til flokkunar voru notuð vettvangsgögn úr fyrri vistgerðarannsóknum á Vesturöræfum og Brúardölum.

Fimm gróðurlyklar, RVI, DVI, SAVI, GNDVI og NDVI, voru prófaðir til samanburðar á hæfni þeirra til að aðgreina vistgerðir. Vettvangsgögn úr fyrri vistgerðarannsóknum á rannsóknarsvæðinu voru notuð til að kanna fylgni gróðurlykla við heildargróðurþekju, þekju háplantna, mosaþekju, þekju skánar, grýtni og heildarfjölda háplantna hverrar vistgerðar.

Vesturöræfi 2004
Frá vettvangsvinnu á Vesturöræfum og Brúardölum sumarið 2004. Ljósm. Rannveig Ólafsdóttir.

Sömu vettvangsgögn voru einnig notuð til flokkunar SPOT-5 myndarinnar á öllum litrófsböndum, annarsvegar með stýrðri flokkun og hinsvegar með sjálfvirkri flokkun. Hæðarlíkan og vatnafarsgögn voru ennfremur notuð við frekari flokkun og leiðréttingar. Vistgerðakort sem var útbúið út frá flokkuninni var borið saman við vistgerðakort sem byggt er á vörpun gróðurfélaga úr hefðbundnum gróðurlykli í vistgerðir og reyndist nákvæmni fjarkönnunarkortsins nokkru meiri en gróðurfélagakortsins.


Verkefnið Vistgerðaflokkun með fjarkönnun, var samstarfsverkefni Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landmælinga Íslands og Háskólasetursins á Hornafirði. Verkefnið var styrkt af RANNÍS, markáætlun um upplýsingatækni og umhverfismál, 2003-2005.


Snæfell og EyjabakkarHæðarlíkan kom að góðum notum við flokkun SPOT-5 myndarinnar í vistgerðir. Á þrívíddarmyndinni hér til vinstri er horft norðvesturs til Snæfells og Eyjabakkar í baksýn.


Þú ert hér: Forsíða > Miðlun og þjónusta > Hrafnaþing > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Miðlun og þjónusta

  • Kynning og fræðsla
  • Bókasafn
  • Hrafnaþing
    • Vetur 2010-2011
    • Vetur 2009-2010
    • Vetur 2008-2009
    • Vetur 2007-2008
    • Vetur 2006-2007
    • Vetur 2005-2006
    • Vetur 2004-2005
    • Vetur 2003-2004
    • Vor 2003
  • Útgáfa
  • Afgreiðsla
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica