Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Bókasafn, Náttúrufræðistofnun Íslands. © Anette Th. Meier

Áhrif loftslagsbreytinga á vistkerfi norðurhjara ? matsskýrsla Norðurskautsráðsins.

10. desember 2003

Undanfarin fjögur ár hefur starfshópur á vegum Norðurskautsráðsins unnið að vísindalegu mati

á áhrifum loftslagsbreytinga á vistkerfi og samfélög norðurhjara. Endanlegar niðurstöður þessa matsferlis verða kynntar á ráðherrafundi Norðurskautsráðsins á Akureyri haustið 2004, en Ísland fer nú með formennsku í ráðinu.

Í erindinu mun dr. Snorri Baldursson, sem setið hefur í stýrinefnd verkefnisins frá upphafi, ræða helstu ábendingar sem fram hafa komið til þessa, einkum hvað varðar áhrif loftslagsbreytinganna á dýra- og gróðursamfélög norðurhjara og á atvinnuhætti íbúa svæðisins. Áhyggjur manna beinast meðal annars að afdrifum dýra, svo sem hvítabjarna, sela og sæljóna sem byggja afkomu sína á hafís. Nokkur reiknilíkön spá því að allur sumarís verði horfinn af Íshafinu um næstu aldamót.


Kampselur Túndrulandslag
Kampselur sólar sig á ís við Grænland. Kampselir hafast aðallega við á rekísnum umhverfis pólinn. Ljósm. GILG & SABARD/GREA. Túndrulandslag. Frá Bylot-eyju, sem liggur norðaustur af Baffins-landi í Kanada, heimkynni ísbjarna, snjógæsa og fjölda annarra heimskautategunda. Ljósm. GILG & SABARD/GREA.



Þú ert hér: Forsíða > Miðlun og þjónusta > Hrafnaþing > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Miðlun og þjónusta

  • Kynning og fræðsla
  • Bókasafn
  • Hrafnaþing
    • Vetur 2010-2011
    • Vetur 2009-2010
    • Vetur 2008-2009
    • Vetur 2007-2008
    • Vetur 2006-2007
    • Vetur 2005-2006
    • Vetur 2004-2005
    • Vetur 2003-2004
    • Vor 2003
  • Útgáfa
  • Afgreiðsla
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica