Náttúrufræðistofnun Íslands Náttúrufræðistofnun Íslands

Beint í leiðarkerfi vefsins.


Úr fuglabók Benedikts Gröndal: Helsingi, snjótittlingar, rjúpa. © Benedikt Gröndal

Áhrif skógræktar á fuglalíf

25. febrúar 2004

Nýklaktir hrossagauksungar í hreiðri
Nýklaktir hrossagauksungar í hreiðri á botni birkiskógar. Hrossagaukurinn er önnur tveggja íslenskra tegunda sem spannar allar landgerðir frá opnu landi yfir í birkiskóg og elsta lerkiskóginn. Hin tegundin er þúfutittlingur.
Ljósm. Ólafur K. Nielsen.

SKÓGVIST er samstarfsverkefni Náttúrufræðistofnunar Íslands, Skógræktar ríkisins og Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins. Megin tilgangur þessa verkefnis er að lýsa þeim breytingum sem verða í vistkerfinu er skógur vex upp á skóglausu landi. Rannsóknasvæðið eru lerki- og birkiskógar austur á Héraði og aðferðafræðin byggir á því að bera saman vistkerfi á skóglausu landi við vistkerfi í misgömlum skógum.

Einn þáttur þessa verkefnis snýst um að lýsa þeim breytingum sem verða á fuglafánunni og það er umfjöllunarefni fyrirlestrarins. Fuglatalningar voru gerðar á skóglausu landi, í gömlum birkiskógi og í lerkiskógum á þremur aldurskeiðum, þ.e. 7-10 ára gömlum lerkiskógum (meðalhæð trjáa 1,4 m), 17-23 ára gömlum (meðalhæð 4,5 m) og 33-47 ára gömlum (meðalhæð 11,8 m).

Tvennskonar aðferðum var beitt við talningarnar svokölluðum punkttalningum annars vegar og hins vegar svokölluðum sniðtalningum. Í erindinu verður fjallað um nákvæmni talninganna, samsetningu fuglafánunnar og hvort og hvernig hún breytist er land klæðist skógi.

Gamall birkiskógur í landi Hallormsstaðar Fuglatalningamaður, Halldór Walter Stefánsson
Gamall birkiskógur í landi Hallormsstaðar. Þessi skógur er ósnortinn og því heppilegur til rannsókna, en hann hefur ekki verið hogginn í meira en heila öld.
Ljósm. Ólafur K. Nielsen.
Fuglatalningamaður, Halldór Walter Stefánsson, að störfum í um 20 ára gömlum lerkiskógi, sem aldrei hefur verið grisjaður. Ljósm. Ólafur K. Nielsen.



Þú ert hér: Forsíða > Miðlun og þjónusta > Hrafnaþing > Greinar

ni.is

  • Forsíða
  • Stofnunin
  • Miðlun og þjónusta
  • Grasafræði
  • Dýrafræði
  • Jarðfræði
  • Vistgerðir

Miðlun og þjónusta

  • Kynning og fræðsla
  • Bókasafn
  • Hrafnaþing
    • Vetur 2010-2011
    • Vetur 2009-2010
    • Vetur 2008-2009
    • Vetur 2007-2008
    • Vetur 2006-2007
    • Vetur 2005-2006
    • Vetur 2004-2005
    • Vetur 2003-2004
    • Vor 2003
  • Útgáfa
  • Afgreiðsla
  • Starfsmenn

Leit á vefsvæðinu


Samskipti

Aðalskrifstofa - (kort)Urriðaholtsstræti 6-8 | Pósthólf 125 | 212 Garðabær Sími: 5 900 500 | Fax: 5 900 595 | Netfang : ni@ni.is

Akureyrarsetur - (kort) Borgum við Norðurslóð | Pósthólf 180 | 602 Akureyri Sími: 460 0500 | Fax: 460 0501 | Netfang : nia@ni.is


Efra hliðarval

  • Rss
  • Veftré
  • English

Útlit síðu:

  • Stærra letur
  • Minna letur
Þetta vefsvæði byggir á Eplica